Innlent

Þeir tuttugu sem eiga flest skot­vopn eiga að meðal­tali 103 vopn hver

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þeir tuttugu sem eiga flest skotvopn hér á landi eiga meira en hundrað vopn hver að meðaltali.
Þeir tuttugu sem eiga flest skotvopn hér á landi eiga meira en hundrað vopn hver að meðaltali. Getty/Lögreglan á Nýja-Sjálandi

Sjö hafa látist eftir að hafa verið skotin á Íslandi frá árinu 1990. Þar af voru fimm karlmenn og tvær konur. Fram kemur í tölum frá Ríkislögreglustjóra að þeir tuttugu sem eiga flest skotvopn hér á landi eigi samanlagt 2.052 vopn.

Þetta kemur fram í tölum frá Ríkislögreglustjóra sem sendar voru á fjölmiðla að beiðni Ríkisútvarpsins í kvöld. Þar kemur fram að tölfræðiupplýsingar um mál þar sem skotvopni hefur verið beitt séu aðeins fyrirliggjandi í manndrápsmálum. Því sé ekki hægt að segja til um hve mörg mál hafi komið upp þar sem skotvopni var beitt án þess að einstaklingur hafi látist. 

Samkvæmt upplýsingunum létust tveir vegna skotárásar á árunum 1990 til 1999 og tveir sömuleiðis árin 2000 til 2009. Þá hafi einn látist eftir að hafa verið skotinn árin 2010 til 2019 og einn árin 2020 og 2021. Inn í þetta er ekki tekið málið sem upp kom á Blönduósi í gær. 

Fram kemur í tilkynningu lögreglu að samkvæmt þessu séu að jafnaði um ellefu prósent manndrápsmála á Íslandi framin með skotvopni. Fjöldi slíkra mála á hverjum áratug hafi elngi vel verið svipaður. 

Þá hafi þann 1. janúar síðastliðinn 47.552 haglabyssur verið skráðar hér á landi vegna Íþróttaskotfimi eða veiða, 121 vegna atvinnu og 54 vegna söfnunar. Þeir tuttugu einstaklingar sem flest skotvopn eigi, eigi samanlagt 2.052 skotvopn eða að meðaltali tæplega 103 vopn hvert.


Tengdar fréttir

Áhyggjur af andlegri heilsu mannsins rötuðu ekki á borð lögreglustjóra

Engin formleg tilkynning um áhyggjur forsvarsmanna skotfélagsins Markviss um andlega heilsu mannsins sem talinn er hafa skotið einn til bana og sært annan á Blönduósi um helgina barst á borð lögreglustjórans á Norðurlandi vestra. Þess í stað var um óformlegar samræður að ræða og ræddi lögreglumaður við árásarmanninn.

Skot­fé­lagið til­kynnti manninn til lög­reglu í nóvember

Skotfélagið Markviss á Blönduósi tilkynnti árásarmanninn í manndrápsmáli á Blönduósi í gær til lögreglu í nóvember á síðasta ári. Maðurinn hafði áður keppt fyrir hönd félagsins og gegnt trúnaðarstörfum þar.

Þetta hefur komið fram um skotárásina á Blönduósi

Samfélagið á Blönduósi er í sárum eftir að skotárás var framin þar á sjötta tímanum í morgun. Kona var myrt í árásinni og eiginmaður hennar liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Sonur hjónanna réð niðurlögum árásarmannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×