Innlent

„Þurf­um að und­ir­gang­ast viður­kennd lög­mál hag­fræðinn­ar,“ segir Bjarni

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Bjarni hefur staðfest að hann muni sækjast eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn áfram.
Bjarni hefur staðfest að hann muni sækjast eftir því að leiða Sjálfstæðisflokkinn áfram. Vísir/Vilhelm

Það er ekki hægt að flýja verðbólguna og Seðlabankinn mun ekki lækka vexti bara af því að gerð eru hróp að honum, segir Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. 

Bjarni segir í viðtali við Morgunblaðið að vel sé unnt að ná farsælum og góðum samningum á vinnumarkaði í haust, sem verji fengna kaupmáttaraukningu.

Hins vegar sé óraunhæft að vænta mikillar kaupmáttaaukningar ár eftir ár um alla framtíð.

„Við þurf­um að und­ir­gang­ast viður­kennd lög­mál hag­fræðinn­ar og þessi viðleitni, sem var unn­in á veg­um Þjóðhags­ráðs, til þess að kort­leggja stöðuna og kom­ast að niður­stöðu um það hversu mikið svig­rúmið [fyr­ir samn­inga] væri, hún var mjög virðing­ar­verð. Það verður að vera hægt að leggja fram staðreynd­ir án þess að það sé hrópað að það endi allt í tæt­ar­an­um,“ segir Bjarni.

Hann ítrekar að það séu aðilar vinnumarkaðarins sem semja sín á milli en stjórnvöld vilji hlusta á vinnumarkaðinn og leggja spilin á borðið til að auka traust. 

Ráðherra segir hróp og köll að seðlabankastjóra eða öðrum óverðskulduð en þau orð seðlabankastjóra að óhóflegar launahækkanir muni leiða til vaxtahækkana gætu hafa komið frá hvaða seðlabankastjóra sem er í heiminum.

„Þetta eru bara al­menn sann­indi og menn ættu ekki þurfa að ríf­ast um þetta.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×