Innlent

Tannlæknir og prófessor með 80 geitur á Snæfellsnesi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Jörundur og Sif, kátir og hressir geitabændur á bænum Hrísakoti á Snæfellsnesi.
Jörundur og Sif, kátir og hressir geitabændur á bænum Hrísakoti á Snæfellsnesi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Geitur eru í miklu uppáhaldi hjá tannlækni og háskólaprófessor á Snæfellsnesi en þar eru þau með um 80 geitur og 50 kið.

Hér eru við við að tala um bæinn Hrísakot þar sem Sif Matthíasdóttir, tannlæknir og Jörundur Svavarsson, háskólaprófessor eru með myndarlegt geitabú, auk kjötvinnslu til að fullvinna afurðirnar af búinu.

Geitunum líður greinilega mjög vel hjá þeim enda vel hugsað um þær og stjanað við þær og kiðin á allan hátt. Nokkrir hestar eru líka á bænum.

„Geiturnar eru svo skemmtilegar, þetta eru mannelskar skepnur og svo klárar skepnur. Þær taka upp á ýmsu en eru virkilega góðir vinir manns, þannig að það eru forréttindi að vera geitabóndi. Eins og þú sérð, þær eru óhræddar við manninn, þær treysta manni, þannig eru þær bara mjög indælar,“ segir Jörundur.

Falleg kið á bænum.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Er þetta skemmtilegu búskapur?

„Mjög svo, það telja reyndar margir að þetta sé óferjandi og óalandi skepnur en þær eru það ekki. Ef girðingarnar eru í lagi þá tolla þær innan girðingar,“ segir Sif og hlær.

Mikið af geitakjöti og öðrum afurðum af geitum er selt í Hrísakoti með góðum árangri. En geita- og kiðakjöt, hvernig kjöt er það?

„Þetta er mjög magurt kjöt, þannig að það er mjög vandasamt í eldamennsku, það er mjög auðvelt að skemma það,“ segir Sif.

Kjötið frá bænum er einstaklega bragðmikið og gott.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En hvernig sér hún búskapinn þróast hjá hjónunum?

„Ég held að við séum komin á toppinn núna, nú förum við að fækka. Við erum bæði komin á aldur og erum bara tvö að standa í þessu, þannig að ég held að fari að snúast að því.“

Fallegar vörur frá Hrísakoti.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Heimasíða Hrísakots




Fleiri fréttir

Sjá meira


×