Innlent

Sektaður um 323 milljónir króna vegna skattalagabrots

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Héraðsdómur Reykjaness
Héraðsdómur Reykjaness Vísir/Vilhelm

Karlmaður á sextugsaldri var í síðasta mánuði dæmdur í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattalagabrot. Að auki var honum gert að greiða 323 milljóna króna sekt vegna brotsins. 

Í dómi Héraðsdóms Reykjaness kemur fram að Georg Mikaelsson hafi staðið skil á röngum skattframtölum gjaldárin 2010 til 2014 og ekki gert grein fyrir eignarhaldi sínu á einkahlutafélaginu GM, sem var skráð á Seychelleseyjum.

Georg neitaði sök og bar meðal annars fyrir sig fyrningu. Héraðsdóm­ur hafnaði því og taldi óum­deilt í mál­inu að Georg hafi ekki getið um fé­lagið á skatt­fram­töl­um, sannað væri að ákærði hafi frá árinu 2009 verið einkaeigandi Félagsins GM. Jafnframt lá fyrir í málinu að félagið hafi verið afskráð 1. janúar 2016.

Bar Georg fyrir sig að honum hafi verið óskylt að geta um félagið á skattframtali þar sem hann hafi aðeins átt 10 prósent hlut í félaginu, eftir að gengið var að tryggingu er hann hafi sett fyrir láni sem hann og félagið hafi fengið árið áður.

Þótti ekki unnt að leggja til grundvallar að 90 prósent hlutur Georgs hafi farið úr hans eigu líkt og hann greindi frá. Varð því að miða við það í málinu að Georg hafi einn verið eigandi félagsins frá upphafi þar til það var lagt niður. Bar honum greina frá því eignarhaldi sínu á skattframtali en það gerði hann ekki á þeim árum sem rakin hafa verið. Var það virt honum til stórfellds hirðuleysis.

Var Georg því dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða 323 milljóna króna sekt í ríkissjóð. Athygli vekur að málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Ólafs Garðarssonar lögmanns, voru ákveðin rúmar 22 milljónir króna. Tekið var fram að málið hafi verið umfangsmikið, gagnaöflun víðtæk og fjöldi vitna komið fyrir dóm. 

Dóminn má nálgast á vefsíðu héraðsdómstóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×