Viðskipti innlent

Múgur og marg­menni við opnun Elko og Krónunnar í Skeifunni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Fólk var mætt í röð fyrir utan nýja verslun Elko sem opnaði í Skeifunni í morgun.
Fólk var mætt í röð fyrir utan nýja verslun Elko sem opnaði í Skeifunni í morgun. Magnús Jochum

Elko og Krónan opnuðu ný útibú í Mylluhúsinu í Skeifunni klukkan 9 í morgun. Áður en verslanirnar opnuðu var mikill fjöldi fólks mættur í röð fyrir utan Elko enda hundrað eintök af Playstation 5 til sölu í versluninni auk fjölda tilboða vegna opnunarinnar. 

Blaðamaður hafði samband við Arinbjörn Hauksson, markaðsstjóra Elko, sem greindi frá opnun nýju verslunarinnar.

„Við erum að flytja gamla búð í Skeifunni og erum að fara úr sirka þúsund fermetra búð yfir í fjórtánhundruð fermetra,“ sagði Arinbjörn um nýju búðina. 

Biðröðin teygði sig eftir öllum inngangi verslananna tveggja og út á götu.Magnús Jochum

Ásamt því að fara úr gömlu rými í nýtt segir Arinbjörn verslunin vera innréttaða með glænýjum innréttingum og að fjöldi stórra hágæðaskjáa þeki veggina.

Playstation 5 í verslun í fyrsta skiptið

Verslunin opnaði klukkan 9 í morgun en þrátt fyrir rigningu og kulda var kominn löng röð af fólki fyrir utan verslunina um tuttugu mínútum áður en hún opnaði.

„Við verðum með opnunartilboð alla helgina, við erum með þannig háttinn á þegar við opnum nýjar verslunar,“ sagði Arinbjörn um opnunina. Frá fimmtudegi og fram yfir helgina verða þessi opnunartilboð fáanleg í verslun Elko í Skeifunni.

Fjöldi fólks var kominn með Playstation-tölvur í hendurnar um leið og búið var að opna verslunina.Magnús Jochum

Vafalaust hafa einhverjir verið spenntir fyrir opnun nýju búðarinnar og þeim opnunartilboðum sem voru þar í boði. En þær hundrað Playstation 5 tölvur sem voru til sölu við opnunina hafa líklega spilað stærsta rullu í að trekkja fólkið að.

Stafli af um 25 Playstation 5 tölvum sem verður vafalaust horfinn í lok dags.Magnús Jochum

Frá því að þessi fimmta og nýjasta útgáfa Playstation-tölvunnar kom út í nóvember 2020 hefur tölvan verið illfáanleg um allan heim. 

Hérlendis hefur hún yfirleitt selst hratt upp í hvert skipti sem bæst hefur í lagerinn. Fólk hefur því eflaust hugsað sér gott til glóðarinnar þegar það heyrði af tölvunum hundrað.

„Við erum með Playstation 5 í verslun í fyrsta skipti í verslun. Við höfum eingöngu selt hana á vef upp á að hafa jafnt aðgengi fyrir alla. En núna erum við í fyrsta skipti með Playstation úti á gólfi, hundrað stykki,“ segir Arinbjörn.

„Það hefur verið mjög erfitt að fá þær og að anna eftirspurn. Og verður erfitt að anna eftirspurn alveg fram á næsta ár,“ sagði Arinbjörn um tölvuna illfáanlegu.

Eftir að fólkið var búið að bíða í röð fyrir utan Elko fór það inn í verslunina og beið þar í annarri röð.Magnús Jochum

Tengdar fréttir

Fyrstu PS5 tölvurnar af­hentar á mið­nætti í gær

Vodafone hóf á miðnætti afhendingar á PlayStation 5 tölvum til viðskiptavina sinna en vélin seldist upp á örfáum klukkustundum þegar forsala hófst þann 17. september síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×