Skoðun

Heja!

Margrét Kristín Blöndal skrifar

Mikið yljar það mér sem móður, dóttur og ömmu að sjá hve vel þær standa sig, konurnar okkar sem ég vil kalla svo og á þá að sjálfsögðu við okkar mæta forsætisráðherra Katrínu Jakobsdóttur og hennar vinkonu utanríkisráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, þar sem þær standa keikar og svo elegant í glæsilegum hópi helstu stríðsherra heimsins! Það er sko stórborgarbragur á okkar konum þessa dagana! Mæta skeleggar til leiks hjá Atlanthafsbandalaginu í Madrid þar sem borgin er nú í einhverskonar viðbúnaðarherkví vegna þess TÍMAMÓTA fundar, í stórborg þar sem fólk hefur meir að segja verið beðið að vinna heiman frá sér því viðbúnaðarstigið er svo hátt! Soldið spennandi fyrir íbúa Madrid að fá að halda þennan TÍMAMÓTA fund…ég játa að ég hef stundum í laumi undanfarið óskað þess hálfvegis að við hefðum getað haldið þennan fund hér en ekkert mál , Madrid er vel að þessum fundi komin því mér er hér efst í huga, þakklæti. Þakklæti sem ég finn svo sterkt fyrir í garð verndara okkar sem fórna sér (jafnvel þegar þeir væru vel að því komnir að taka sér gott sumarfríi eftir erilsaman vetur) fyrir okkar velferð. Leggja á sig ferðalag (sem sumir skítkastarana leyfa sér að gagnrýna fyrir að vera ekki nógu umhverfisvænt, en fari þeir og veri).

Í okkar þágu ætla þessir englar að auka stórlega útgjöld til hermála á öllum sínum vígstöðvum og í herliðum Evrópu skal fjölgað!

Ég segi takk. Ég segi takk, öll þið sem takið undir með kórnum. Ég segi takk öll sem leggið lið þeim málstað sem tætir í sundur “rétta drengi” og ég þakka fyrir hve sameinuð við erum, íslensk þjóð um það að liðka fyrir lengra stríði, stærra stríði við hinn eina sanna óvin! Ég þakka fyrir það hve átaklaust það hefur verið fyrir okkar fremstu, útvöldu eðalforingja að setja þetta stríð í "rétt" samhengi. Saman munum við láta þá hafa það óþvegið og fórnum sonum og eiginmönnum og feðrum svo sannarlega fyrir þann málstað!

Við Íslendingar, Bandaríkjamenn, Tyrkir, Bretar, Ungverjar, Danir og öll hin stöndum sem aldrei fyrr, mótþróalaust loksins saman að stríðsrekstrinum! Það munar um svoleiðis, maður veit það alveg. Fundum við kannski ekki öll gleðibylgjuna hríslast um okkur þegar fregnirnar af innlimun Svía og Finna gekk í garð í gær? Þótt það hefði ekki verið fyrir annað en að Nato gerði okkur kleift að tala "dönsku", á Spáni.

Magga Stína.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×