Rödd Bósa ljósárs segir andstæðinga fjölbreytni „bjána“ Kjartan Kjartansson skrifar 15. júní 2022 19:48 Chris Evans fer með aðalhlutverkið í „Ljósárí“. Hann er einnig þekktur fyrir að túlka ofurhetjuna Kaftein Bandaríkin í Marvel-myndasagnaheiminum sem Disney á einnig. Vísir/EPA Chris Evans, sem ljær Bósa ljósári rödd sína, segir fólk sem er reitt yfir því að tvær konur kyssist í nýrri teiknimynd vera „bjána“. Myndin hefur meðal annars verið bönnuð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum vegna kossins.
Í kvikmyndinni „Ljósár“ þar sem uppruni persónu Bósa ljósárs úr „Leikfangasögu“ er rakinn sést ein kvenpersónan kyssa eiginkonu sína. Samtökin hinsegin fólks hafa fagnað sýnileika samkynhneigðs pars í Disney/Pixar-mynd. Bandarískir íhaldsmenn hafa aftur á móti risið upp á afturlappirnar og mótmælt senunni. Þeir hafa nú um nokkurt skeið haft horn í síðu Disney eftir að fyrirtækið mótmælti nýjum lögum í Flórída sem banna kennurum að ræða kynhneigð eða kynvitund í skólum. Saka þeir Disney nú um að reka „samkynhneigðan áróður.“ Evans þykir ekki mikið til gagnrýni íhaldsmanna í Bandaríkjunum og víðar koma. „Sannleikurinn sá er að þetta fólk er bjánar,“ sagði hann við Reuters-fréttastofuna þegar hann var spurður út í deilurnar. „Það verður alltaf til fólk sem er hrætt og ómeðvitað og sem reynir að halda í hlutina eins og þeir voru áður en það fólk deyr út eins og risaeðlurnar. Ég held að markmiðið sé að gefa þeim ekki gaum, halda áfram veginn og fagna þeim vexti sem gerir okkur að manneskjum,“ sagði leikarinn. Disney hefur ítrekað átt í vök að verjast gegn nettröllum þegar afþreyingarefni fyrirtækisins skartar persónum sem eru hvorki hvítar né karlkyns. Þannig hefur leikkonan Moses Ingram setið undir kynþáttaníði á samfélagsmiðlum fyrir að hafa leikið aukahlutverk í Stjörnustríðsþáttunum „Obi-wan Kenobi“ sem nú eru í sýningu.
Hinsegin Disney Bíó og sjónvarp Mest lesið Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Lífið Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn Tíska og hönnun Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Tónlist Starfsfólkið í fyrsta sæti og börnin í öðru Lífið Aukin lofthæð, Versace flísar, pottur og pool herbergi Lífið Akureyringar komast loksins á Prikið Lífið Tinna Brá og Ari Eldjárn færðu fertugsafmælið út á sjó Lífið Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Tónlist Myndaveisla: Metfjöldi á opnunarhelgi Hjarta Hafnarfjarðar Lífið Íslenskir dansarar sópa til sín verðlaunum á heimsmeistaramóti Lífið Fleiri fréttir Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira