Viðskipti innlent

Fimm ferða­þjónustu­fyrir­tæki sam­einast undir nafni Icelandia

Atli Ísleifsson skrifar
Starfsmenn sameinaðra fyrirtækja.
Starfsmenn sameinaðra fyrirtækja. Aðsend

Fimm ferðaþjónustufyriræki – Reykjavík Excursions/Kynnisferðir, Icelandic Mountain Guides, Iceland Rovers, Dive.is og Flybus – verða sameinuð undir merkjum regnhlífaheitisins Icelandia. Er ætlunin með nýju nafni að með skapa brú milli fyrirtækjanna með samlegðaráhrifum í markaðsstarfi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að nýtt nafn hafi nýlega verið kynnt fyrir starfsfólki á árshátíð fyrirtækisins.

Undanfari sameiningarinnar undir nafninu Icelandia hafi verið margra mánaða vinna þar sem kortlögð hafi verið sameiginleg markmið fyrirtækjanna í þeim tilgangi að auka samvirkni þeirra í einu sameinuðu félagi.

„ICELANDIA er einnig umboðsaðili Enterprise Rent-a-car bílaleigunnar, er undirverktaki Strætó BS. í akstri á höfuðborgarsvæðinu og rekur dráttarbílafyrirtæki undir nafninu Garðaklettur ehf. Auk þess er ICELANDIA hluthafi í nokkrum öðrum ferðaþjónustufyrirtækjum eins og Fontana á Laugarvatni, Íslenskum Heilsulindum og Raufarhólshelli.

Fjölbreytt þjónusta á traustum grunni

Fyrirtæki ICELANDIA eiga sér langa sögu í íslenskri ferðaþjónustu en Kynnisferðir (e. Reykjavik Excursions) er eitt elsta ferðaþjónustu fyrirtæki landsins, stofnað 1968. Félögin sinna ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða, á láði og legi.

Nafnið ICELANDIA staðsetur fyrirtækið beint sem miðpunkt ferðalausna á Íslandi gagnvart erlendum ferðamönnum en vísar jafnframt í tilgátur um að undir Íslandi væri falin heimsálfa; Icelandia.

Sem miðstöð upplifana á Íslandi mun ICELANDIA standa betur að vígi gagnvart ferðamönnum í því að miðla ævintýrum á Íslandi sem byggir á sterku baklandi og reynslumiklu starfsfólki félagsins. Þekking og fjölbreytni verður kjarninn í starfsseminni á markaði sem er þekktur fyrir síbreytilegar áskoranir sem þarf að leysa fyrir viðskiptavini svo þeim sé gert kleift að njóta Íslandsferðarinnar sem best,“ segir í tilkynningunni.

Björn Ragnarsson er framkvæmdastjóri Icelandia.Aðsend

Helsta gáttin

Haft er eftir Birni Ragnarssyni, framkvæmdastjóra Icelandia, að það hafi verið sviptingasamt í íslenskri ferðaþjónustu undanfarin ár – eldsumbrot, skakkaföll í framboði á flugi til landsins og heimsfaraldur COVID-19 hafi sýnt svo ekki verður um villst að sveigjanleiki og samvirkni starfsfólks undir einum hatti sé áreiðanlegasta leiðin til að takast á við breytingar. 

„Við ætlum okkur stærri hluti á markaðnum og hyggjumst leiða okkar fólk á nýjar slóðir núna þegar íslensk ferðaþjónusta stendur á enn einum tímamótunum, með vaxandi fjölda dýrmætra ferðamanna sem elska landið okkar eins og við sjálf. Nýtt og sameinað fyrirtæki undir nafninu ICELANDIA er til marks um vilja okkar til að standast ekki bara væntingar, heldur verða þekkt sem helsta gáttin að Íslandi,“ segir Björn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×