Innlent

Nýtt skipulag vegna samfélagsraskana í Árborg

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Fundurinn fór fram í húsnæði Björgunarmiðstöðvarinnar á Selfossi.
Fundurinn fór fram í húsnæði Björgunarmiðstöðvarinnar á Selfossi. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Sveitarfélagið Árborg hefur tekið í gagnið nýtt skipulag vegna samfélagsraskana, sem gætu orðið, t.d. af völdum jarðskjálfta, eldgosa, flóði í Ölfusá, stórra bruna eða hryðjuverkaárásar.

Í vikunni kynnti almannavarnaráðs Árborgar nýtt almannavarnarskipulag vegna ýmissa samfélagsraskana, sem gætu orðið í sveitarfélaginu en bæjarstjórn samþykkti nýja skipulagið nýlega á fundi sínum. Víðir Reynisson fyrir hönd lögreglustjórans á Suðurlandi stýrði vinnunni í upphafi en síðast tók Dr. Sólveig Þorvaldsdóttir, ráðgjafarverkfræðingur við keflinu en hún þekkir málefni almannavarna mjög vel.

Helgi Haraldsson, forseti bæjarstjórnar er hins vegar formaður Almannavarnarráðs Árborgar.

„Þetta er tilbúið, þessi vinna er klár og fram undan er að setja upp með starfsfólkinu æfingar og láta þetta fúnkera. Við erum rosalega stolt af þessari vinnu og þessari afurð, sem við erum komin með. Það gefur auga leið að hvert sveitarfélag þarf að vera tilbúið ef eitthvað gerist með sín viðbrögð, það hiksti ekkert,“ segir Helgi og bætir við.

Helgi Haraldsson, formaður almannavarnarráðs Árborgar.Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Við munum núna opna innri vef fyrir starfsfólk og bæjarfulltrúa sveitarfélagsins þar sem þetta er kynnt hvað hver á að gera. Og við munum svo vinna úr þessu hnapp eða upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins þar sem íbúarnir geta farið inn og séð þetta skipulag.“

Hluti af þeim gestum, sem sótti fundinn.Magnús Hlynur Hreiðarsson

En hvaða ógnir erum við helst að tala um hvað Árborg varðar?

Sólveig er með það á hreinu.

„Það eru flóðin, við búum nálægt eldfjöllum og svo eru hlutir, sem engum datt í hug fyrr en það gerðist, eins og heimsfaraldur. Svo getur maður kannski farið út í þar sem maður vill helst ekki hugsa um en þarf að hugsa um. Það eru einhverjar árásir, hryðjuverkaárásir eða slíkt. Þá er ágætt að vera undirbúin, þannig að það er svona eitt og annað. Þetta er eins og hvert annað tryggingamál, maður þarf að hafa sínar tryggingar í lagi,“ segir Dr. Sólveig.

Dr. Sólveig Þorvaldsdóttir fór vel yfir nýja skipulagið og svaraði fyrirspurnum um það.Magnús Hlynur Hreiðarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×