Innlent

Gissur fær fast­ráðningu sem fram­­kvæmda­­stjóri BHM

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gissur Kolbeinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá BHM.
Gissur Kolbeinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá BHM. BHM

Gissur Kolbeinsson var nýverið ráðinn framkvæmdastjóri BHM og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM. Gissur tekur við starfinu af Ernu Guðmundsdóttur sem lét af störfum í byrjun apríl.

Hann er með B.S.- gráðu í viðskiptafræði frá háskólanum á Bifröst og meistaragráðu í stjórnun- og stefnumótum frá Háskóla Íslands.

Gissur er flestum hnútum kunnugur innan BHM og hefur starfað hjá bandalaginu um árabil. Fyrst sem fulltrúi sjóða og sem fjármála- og rekstrarstjóri frá 2015. 

Gissur hefur verið skilgreindur staðgengill framkvæmdastjóra undanfarin tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×