Norður-Makedónía gerði út um HM draum Evrópumeistaranna Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 24. mars 2022 21:44 Aleksandar Trajkovski skoraði eina mark leiksins í kvöld og tryggði Norður-Makedóníu óvæntan sigur gegn Ítölum. Tullio M. Puglia/Getty Images Norður-Makedónía gerði sér lítið fyrir og vann óvæntan 1-0 sigur gegn Ítölum í undanúrslitum umspilsins um laust sæti á HM í Katar í kvöld. Evrópumeistararnir eru því úr leik og verða ekki með á HM í desember. Ítalir voru mun betri aðilinn í leiknum og voru til að mynda rúmlega 70 prósent með boltann í kvöld. Liðið sótti án afláts, en vörn makedónska liðsins stóð vel og gaf Ítölum ekki mörg færi á sér. Það var því enn markalaust þegar flautað var til hálfleiks, og raunar hafi ekkert verið skorað þegar venjulegur leiktími rann út. Á annarri mínútu uppbótartíma skoraði Aleksandar Trajkovski fyrir gestina frá Norður-Makedóníu og tryggði liðinu ótrúlegan sigur gegn ríkjandi Evrópumeisturum. Norður-Makedónía er því á leið í hreinan úrslitaleik um sæti á HM þar sem liðið mætir Portúgal næstkomandi þriðjudag. Þjóðadeild UEFA HM 2022 í Katar Norður-Makedónía Ítalía