Innlent

Þriggja bíla árekstur við Suðurlandsbraut og Grensásveg

Eiður Þór Árnason skrifar
Einhver snjór og bleyta er á götum borgarinnar.
Einhver snjór og bleyta er á götum borgarinnar. Vísir/Vilhelm

Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Grensásvegar í Reykjavík um klukkan sjö í kvöld. Engin alvarleg slys urðu á fólki og var enginn fluttur á sjúkrahús.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru bílarnir þó eitthvað skemmdir. Hann segir erfitt að leggja mat á það hvort slæm færð hafi átt þátt sinn í óhappinu. Þó einhver hálka og bleyta sé á götum sé alla jafna ekki mikill snjór á stofnæðum í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×