Innlent

Undirgöng fyrir reiðhjólafólk og gangandi kosta hálfan milljarð

Kristján Már Unnarsson skrifar
Undirgöngin verða undir Arnarnesveg, sjávarmegin við Hafnarfjarðarveg.
Undirgöngin verða undir Arnarnesveg, sjávarmegin við Hafnarfjarðarveg. Úti og inni arkitektar

Undirgöng sem Vegagerðin og Garðabær áforma að gera á Arnarneshæð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur munu kosta vel yfir hálfan milljarð króna, verði eina tilboðinu sem barst í verkið tekið. Ofan á það bætist undirbúnings-, hönnunar- og eftirlitskostnaður.

Tilboðið kom frá Bergi Verktökum og hljóðar upp á 535,7 milljónir króna. Það er 30 prósentum hærra og 125 milljónum króna yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 410,8 milljónir króna.

Útlitsteikning af undirgöngunum og hjóla- og göngustígunum, sem verða aðskildir.Úti og inni arkitektar/Onno

Jafnframt hafa tilboð í eftirlit með verkinu verið opnuð. Fjögur tilboð bárust í eftirlitsþáttinn, það lægsta frá VBV ehf., Kópavogi, upp á 8.4 milljónir króna. Það reyndist vera 84 prósent af 10 milljóna króna áætlun. 

Verkið er hluti af Samgöngusáttmálanum. Hönnun er í höndum VSB verkfræðistofu, Landslags og Úti Inni arkitekta. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í apríl og verði lokið í desember, að því er fram kom í íbúakynningu Garðabæjar í síðasta mánuði.

Hjólreiðamaður á Arnarneshæð í slagviðri. Ef áformin ganga eftir getur hann hjólað í undirgöngum næsta vetur og þarf að erfiða minna við að hjóla yfir hæðina.Vilhelm Gunnarsson

„Núverandi göngu- og hjólastígur beggja vegna Arnarnesvegar verður lagfærður og lagður í undirgöng undir veginn. Gatnamót yfir undirgöngum verða jafnframt lagfærð, beygjureinum breytt og gönguleiðir uppfærðar. 

Hluti af framkvæmdinni er einnig gerð bráðabirgða vega og stíga fyrir umferð akandi, gangandi og hjólandi á framkvæmdatíma. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Garðabæjar,“ segir í útboðslýsingu en þar segir að verkinu skuli að fullu lokið 31. nóvember 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×