Innlent

Á­rekstur vöru­bíls og fólks­bíls í Hafnar­firði

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynning um áreksturinn barst slökkviliði klukkan 7:50.
Tilkynning um áreksturinn barst slökkviliði klukkan 7:50. Vísir/Vilhelm

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að vörubíll og fólksbíll rákust saman í Hringhellu í Hellnahverfi í Hafnarfirði í morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var einn fluttur á slysadeild, en sá er ekki talinn vera alvarlega slasaður.

Tilkynning um áreksturinn barst slökkviliði klukkan 7:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×