Bæjarar björguðu sér fyrir horn á síðustu stundu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Hart barist í Salzburg í kvöld.
Hart barist í Salzburg í kvöld. vísir/Getty

Bayern Munchen komst í hann krappan þegar liðið heimsótti RB Salzburg í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Um var að ræða frumraun austurríska liðsins í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar og augljóst frá fyrstu mínútu að þeir myndu leggja allt í sölurnar.

Sóknarmenn Salzburg voru mjög sprækir í upphafi leiks og komu varnarmönnum Bayern reglulega í vandræði. Það var því verðskuldað þegar Chukwubuike Adamu kom heimamönnum í forystu á 21.mínútu en hann hafði skömmu áður komið inn af varamannabekknum fyrir Noah Okafor sem meiddist snemma leiks.

Bæjurum óx ásmegin eftir því sem leið á leikinn en þrátt fyrir það voru heimamenn nálægt því að bæta við forystuna og komst Karim Adeyemi næst því þegar um tíu mínútur lifðu leiks en Svein Ulreich sá við honum og í kjölfarið bjargaði Benjamin Pavard marki á síðustu stundu.

Kingsley Coman var sprækur í liði Bayern og hann náði að jafna metin á lokamínútu venjulegs leiktíma og skildu liðin því jöfn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira