Ætti ég að skipta um vinnu? Rakel Sveinsdóttir skrifar 10. janúar 2022 07:00 Þótt við séum í góðu starfi og gangi almennt vel í vinnunni, er ekki þar með sagt að það blundi í okkur löngun til að breyta: Skipta um starf, starfsvettvang eða jafnvel fara að gera eitthvað allt annað. Oftast vitum við svörin innra með okkur, hvað er réttast að gera. Vísir/Getty Það er einmitt á þessum tíma árs sem við horfum svolítið inn á við með hvað okkur langar að gera. Sumir velta til dæmis fyrir sér hvort nú sé tíminn til að skipta um starf?
Það skrýtna er, að við búum oftast sjálf yfir svörunum nú þegar. Samt geta vangaveltur sem þessar tekið frá okkur tíma og orku. Jafnvel þannig að eftir margar vikur eða mánuði, erum við enn á sama stað: Ætti ég að breyta um starf? HÉR eru þrjú einföld ráð sem geta gefið þér vísbendingar um það, hvað væri réttast fyrir þig að gera. 1. Hvað segir innsæið þitt? Þetta er ekki bull eða vitleysa, því allir búa yfir innsæi. Og þetta innsæi reynist okkur oftar en ekki besti leiðbeinandinn. Prófaðu að velta fyrir þér, hvort þú ættir að skipta um starf? Ef þú finnur jákvæða tilfinningu fylgja þeirri hugsun, er innsæið mögulega að segja þér að fylgja því skrefi eftir. Þótt enginn rökstuðningur fylgi svo sem þeirri tilfinningu annað en jákvæðir straumar. Ef þú hins vegar finnur fyrir einhvers konar fyrirstöðu innra með þér, er innsæið mjög líklega að segja þér að á þessum tímapunkti, ættir þú ekki að skipta um starf. Það sama gildir: Enginn rökstuðningur fylgir svarinu annað en þessi tilfinning sem veldur óróa eða þú upplifir sem fyrirstöðu. 2. Kannaðu málin Að leita sér upplýsinga, skoða hvaða störf eru mest auglýst, hvaða reynslu og hæfni sérstaklega er verið að falast eftir og fleira, getur verið ágætis leið til að átta sig betur á því hvort nú sé rétti tímapunkturinn til að skipta um starf. Hver veit nema það sé einhver allt annar vinnuveitandi, jafnvel í allt öðrum geira, einmitt að leita eftir eiginleikum og hæfni sem þú býrð yfir? 3. Löngun, vilji og geta til að gera meira Stundum er það fyrst og fremst þörfin fyrir nýjar áskoranir sem verður til þess að við skiptum um starf. Þetta er eðlilegt, enda byggir okkar eiginn vöxtur á því að við séum alltaf að takast á við áskoranir, læra eitthvað nýtt, jafnvel stíga út fyrir þægindarrammann reglulega. Ef þér finnst viss stöðnum í starfinu þínu í dag, er ástæða til að velta fyrir sér hvort tími sé kominn til breytinga. Stöðnun getur þá líka birst í formi þess að þú finnur ekki sama áhuga, ástríðu og kraft og þú eitt sinn upplifðir í núverandi starfi. Það getur síðan verið allur gangur á því hvort tækifæri til breytinga finnist í starfsþróun hjá sama vinnuveitanda eða nýjum.
Starfsframi Góðu ráðin Tengdar fréttir Að temja hugann er langhlaup: Sjáðu framtíðina fyrir þér 12. ágúst 2020 11:00 Ekki (endilega) þiggja starfið ef… Nú þegar atvinnuleysi mælist hlutfallslega hátt má alveg gera ráð fyrir að stundum sé fólk svo ánægt og þakklát ef það fær vinnu, að það segir JÁ við þeim tilboðum sem það fær. Sem þó geta verið alls konar. Og sum kannski ekkert endilega góð fyrir þig. 17. september 2021 07:00 Í vinnu eða atvinnuleit: Ekki birta of mikið á samfélagsmiðlum Við erum sjaldan jafn dugleg að birta myndir á samfélagsmiðlunum og þegar að við erum í sumarfríi. Enda skemmtilegt að sjá hvert fólk er að ferðast og hvað það er að gera. En það eru margar ástæður fyrir því að fólk ætti að forðast að birta of mikið af myndum, of oft eða hvaða myndir sem er. 19. júlí 2021 07:01 Að velja rétta vinnustaðinn: Fjögur mikilvæg atriði Við heyrum svo mikið um atvinnuleysi en minna um atvinnuleit eða val fólks á því starfi sem það vill ráða sig í. En öll höfum við val og þegar að því kemur að við erum að ráða okkur í nýtt starf, er mikilvægt að velta fyrir sér, hvort við séum að velja rétta vinnustaðinn fyrir okkur! 30. apríl 2021 07:01 Á sextugsaldri í atvinnuleit: Þrjú góð ráð Fólk á sextugsaldri í atvinnuleit þarf að gæta þess að ferilskráin þeirra sé ekki lengri en ein til tvær A4 síður þótt starfsreynslan sé mikil. Þá er um að gera að nýta sér samfélagsmiðlana eins og unga fólkið gerir. 24. ágúst 2020 09:00 Mest lesið Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Atvinnulíf Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Salzburg úr sögunni hjá Play Viðskipti innlent Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka Viðskipti innlent Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Horfðu á hallærislegt sjónvarpsefni og úðuðu í sig bragðaref Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Fyrir mann sem er skrifblindur og lesblindur er þetta ekkert auðvelt“ „Ég verð auðveldlega meyr en segi engum frá því“ Draumar rætast: „Konur þurfa ekki alltaf að vera á skrilljón“ Draumar rætast: „Lengi skammaðist ég mín ...“ Biskupinn á hlaupum með Bubba Morthens og Sísí með Grýlunum Tvöfalt líf Ara: „Í fyrra túraði ég í sex vikur“ Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Eiginkonan kvartar undan fíflagangi á morgnana Að ná til baka tilfinningunni: Það er gaman í vinnunni Á mannamáli: „Ég er bara einhver „nobody,“ við erum ekki með nein gögn“ Góð ráð til að hvetja starfsfólk til dáða fyrir síðustu spretti ársins Að yfirstíga eitthvað rosalega vandræðalegt atvik Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti Að lifa af hræðilega þynnku í vinnunni Sjá meira
Ekki (endilega) þiggja starfið ef… Nú þegar atvinnuleysi mælist hlutfallslega hátt má alveg gera ráð fyrir að stundum sé fólk svo ánægt og þakklát ef það fær vinnu, að það segir JÁ við þeim tilboðum sem það fær. Sem þó geta verið alls konar. Og sum kannski ekkert endilega góð fyrir þig. 17. september 2021 07:00
Í vinnu eða atvinnuleit: Ekki birta of mikið á samfélagsmiðlum Við erum sjaldan jafn dugleg að birta myndir á samfélagsmiðlunum og þegar að við erum í sumarfríi. Enda skemmtilegt að sjá hvert fólk er að ferðast og hvað það er að gera. En það eru margar ástæður fyrir því að fólk ætti að forðast að birta of mikið af myndum, of oft eða hvaða myndir sem er. 19. júlí 2021 07:01
Að velja rétta vinnustaðinn: Fjögur mikilvæg atriði Við heyrum svo mikið um atvinnuleysi en minna um atvinnuleit eða val fólks á því starfi sem það vill ráða sig í. En öll höfum við val og þegar að því kemur að við erum að ráða okkur í nýtt starf, er mikilvægt að velta fyrir sér, hvort við séum að velja rétta vinnustaðinn fyrir okkur! 30. apríl 2021 07:01
Á sextugsaldri í atvinnuleit: Þrjú góð ráð Fólk á sextugsaldri í atvinnuleit þarf að gæta þess að ferilskráin þeirra sé ekki lengri en ein til tvær A4 síður þótt starfsreynslan sé mikil. Þá er um að gera að nýta sér samfélagsmiðlana eins og unga fólkið gerir. 24. ágúst 2020 09:00