Bandaríkjaher þróar nýtt bóluefni Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 24. desember 2021 13:07 Gert er ráð fyrir því að efnið verði kynnt bráðlega. EPA/Lane Bandaríkjaher hefur unnið að þróun nýs bóluefnis gegn kórónuveirunni sem á að virka vel gegn öllum mögulegum afbrigðum veirunnar. Gert er ráð fyrir því að bóluefnið verði kynnt opinberlega á næstu vikum.
Vísindamenn hjá Walter-Reed, rannsóknarstofnun Bandaríkjahers, hafa unnið að þróun bóluefnisins í tæp tvö ár. Efnið var þróað með það í huga að það dygði ekki aðeins gegn upprunalega afbrigði kórónuveirunnar heldur öðrum mögulegum afbrigðum sem kynnu að þróast í kjölfar útbreiðslu veirunnar. Tilraunir á fólki hófust í apríl á þessu ári og lauk fyrsta fasa tilraunarinnar fyrr í þessum mánuði. Bóluefnið virðist virka vel en nánar verður greint frá niðurstöðum tilrauna á næstu vikum. Þetta kemur fram í frétt The Hill. Bóluefnið er svokallað SpNF bóluefni sem er ólíkt öðrum bóluefnum sem notuð hafa verið hingað til í baráttu við veiruna. Efnið nýtir prótín með tuttugu og fjórum fösum, sem merkir að það geti tengst öllum broddum mismunandi afbrigða kórónuveirunnar. Efnið er þar að auki talið ódýrt í framleiðslu og gert er ráð fyrir því að ein sprauta með bóluefninu veiti nægilega vernd gegn veirunni.
Bandaríkin Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Vaktin: Bílaplanið þakið hrauni Innlent Sigmundur hafi viljað í kennslustund með nemendum Innlent Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum Innlent Telur Bláa lónið öruggt vegna varnargarðanna Innlent Endalok goshrinunnar teygist inn á mitt næsta ár Innlent „Þetta var bara besta stund kosningabaráttunnar til þessa“ Innlent Funda áfram hjá sáttasemjara á morgun Innlent „Fólki er frekar misboðið“ Innlent Fleiri fréttir Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Stofnandi World Wrestling Entertainment verður menntamálaráðherra Úkraínuforseti hvetur Vesturlönd til einbeittari stuðnings Ungar danskar konur taldar hafa látist af metanóleitrun Þúsund dagar af grimmd og eyðileggingu Börn Pelicot biðla til föður síns um að játa brot sín að fullu Stjúpsonur norska krónprinsins aftur handtekinn Hjálpargögnum stolið af tæplega hundrað flutningabifreiðum Tugur lýðræðissinna í Hong Kong dæmdur í fangelsi Segist ætla að siga hernum á farand- og flóttafólk Segir Biden „hella olíu á eldinn“ Verða fyrst í heimi til að skattleggja losun frá búfénaði Sjá meira