Viðskipti innlent

Borgin þurfi að fara í megrun

Fanndís Birna Logadóttir og Eiður Þór Árnason skrifa
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Vísir/Vilhelm

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, gagnrýnir harðlega fjárhagsáætlun og fimm ára áætlun Reykjavíkurborgar sem samþykkt var af borgarstjórn í gærkvöld.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði áætlunina vera áframhaldandi sóknaráætlun þar sem krafti borgarinnar yrði áfram beitt til að halda uppi háu fjárfestingarstigi, áframhaldandi metnaði fyrir mikilvægum verkefnum og góðri þjónustu.

Að sögn Eyþórs er þó von á stanslausri skuldsetningu allt næsta kjörtímabil ef áætlunin nær fram að ganga. Áætlun meirihlutans geri ráð fyrir að skuldir vaxi um 50 milljarða og þær verði jafnvel enn meiri. Hann vill nú að borgarstjórn líti til þess sem máli skipti í stað þess að fara sífellt í ný verkefni. Þetta þurfi að hafa í huga fyrir sveitarstjórnakosningar á næsta ári.

„Það er núna verið að taka lán upp á tvo milljarða á hverjum mánuði og ekkert verið að hagræða, þannig við lögðum til að Reykjavíkurborg færi út úr þessum rekstri sem ekki er hefðbundin rekstur borgarinnar, eins og malbikunarstöð og fjarskiptaréttur og annað, en það var fellt þannig að nú stendur til að halda áfram að láta báknið vaxa,“ segir Eyþór í samtali við fréttastofu.

Eigi ekki að fara út fyrir verksvið sitt

„Við sáum að það vantar síðan margt inn í áætlunina, til dæmis er búið að dæma Orkuveituna til að borga Glitni nokkra milljarða, og það verður væntanlega að borga það fyrst það er búið að dæma. Síðan eru fleiri atriði sem ég held að séu vantalin þannig þetta verður meira ef ekkert verður að gert,“ bætir Eyþór við.

Hann segir að sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara á næsta ári muni meðal annars snúast um það hvort halda eigi áfram á sömu braut.

„Að láta báknið vaxa og að fjárfesta í malbikunarstöð í Hafnarfirði, eða að fara í að einblína á það sem máli skiptir, skólana og skipulagsmálin.“

Eyþór kallar í því samhengi eftir að borgin hugi betur að grunnþjónustu sinni, eyði biðlistum eftir leikskólaplássum og hafi skipulagsmálin í lagi, í stað þess að fara „langt út fyrir verksvið sitt í einhverjum nýjum verkefnum.“

„Fara bara aftur í það að horfa á það sem máli skiptir fyrir fólkið í borginni og fjölskyldunnar.“

„Þetta er eins og megrun, borgin þarf bara að fara í megrun og síðan fara í ræktina og sinna sínum málum vel,“ segir Eyþór að lokum.


Tengdar fréttir

Segja tugmilljarðagat í fjárhagsáætlun borgarinnar

Borgarstjóri segir að engin efnahagsleg óstjórn ríki í Reykjavík en oddviti Sjálfstæðisflokksins, stærsta stjórnarandstöðuflokksins, furðar sig á því af hverju kostnaður við rekstur Reykjavíkurborgar sé 20 prósentum hærri á íbúa en í nágrannasveitarfélögunum. Hann segir tugmilljarðagat í fjárhagsáætlun borgarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×