Innlent

Fluttur á slysa­deild eftir fjögurra bíla á­rekstur

Eiður Þór Árnason skrifar
Slysið átti sér stað við Grensásveg og Miklubraut. Ljósmyndin er úr safni.
Slysið átti sér stað við Grensásveg og Miklubraut. Ljósmyndin er úr safni. Vísir/Rakel

Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar í dag og var einn fluttur á slysadeild til nánari skoðunar. Sá var ekki alvarlega slasaður.

Tilkynning barst um slysið um klukkan 11 var lögregla og slökkvilið kallað á staðinn.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru sjö manns í fólksbílunum fjórum. Nokkrar umferðartafir mynduðust vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×