Erlent

Fyrsta trans manneskjan til að gegna ráð­herra­em­bætti í Sví­þjóð

Atli Ísleifsson skrifar
Magdalena Andersson er fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Svíþjóðar. Hér er hún með nýrri ríkisstjórn sinni.
Magdalena Andersson er fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Svíþjóðar. Hér er hún með nýrri ríkisstjórn sinni. EPA

Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, kynnti ríkisstjórn sína í morgun, daginn eftir að sænska þingið samþykkti hana sem forsætisráðherra landsins.

Andersson þurfti að fá nýtt fólk inn í ríkisstjórnina eftir að Græningjar gengu úr ríkisstjórnarsamstarfinu í síðustu viku. Þá nýtti hún tækifærið og gerði hrókeringar innan ráðherraliðsins. 

Alls eiga 23 ráðherrar sæti í ríkisstjórninni sem er minnihlutastjórn Jafnaðarmannaflokksins sem Vinstriflokkurinn, Græningjar og Miðflokkurinn verja vantrausti.

Lina Axelsson Kihlblom.Wikipedia

Meðal þeirra sem koma ný inn í ríkisstjórnina er Lina Axelsson Kihlblom sem verður ráðherra málefna æðri menntunar og þar með fyrsta trans manneskjan til að gegna ráðherraembætti í landinu.

Kihlblom vakti þjóðarathygli í sjónvarpsþáttunum Skólastjórunum (s. Rektorerna) þar sem meðal annars var sögð saga Kihlblom og hvernig tókst að bæta námsárangur barna í Ronnaskolan í Södertälje.

„Ég ætla að taka með mér þá sannfæringu að hvert einasta barn geti náð góðum árangri í skólanum,“ sagði Kihlblom þegar hún tók við ráðherraembættinu í morgun.

Andersson tilkynnti jafnframt að innanríkisráðherrann Mikael Damberg taki við embætti fjármálaráðherra – embætti sem Andersson hefur sjálf gegnt frá árinu 2014. Ann Linde verður áfram utanríkisráðherra.

Ný ríkisstjórn tók formlega við völdum eftir fund með Karli Gústaf Svíakonungi í hádeginu.

Þingkosningar fara fram í Svíþjóð í september á næsta ári.


Tengdar fréttir

Magda­lena Anders­son for­sætis­ráð­herra aftur á ný

Magdalena Andersson, formaður sænskra Jafnaðarmanna, var endurkjörin í dag í embætti forsætisráðherra en hún sagði af sér á dögunum eftir að hafa fyrst kvenna aðeins setið í embætti í sjö klukkustundir. Andersson sagði af sér í síðustu viku í kjölfar þess að Græningjar ákváðu að ganga úr ríkisstjórn.

„Nískasti fjár­mála­ráð­herra ESB“ lík­legastur til að taka við

Stefan Löfven greindi frá því um síðustu helgi hann ætli sér að láta af störfum sem forsætisráðherra Svíþjóðar í haust. Hann muni ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í Jafnaðarmannaflokknum á landsþingi í nóvember. Skiljanlega eru farnar af stað miklar umræður um hver muni taka við formennsku í flokknum og yrði þá í kjörstöðu til að taka einnig við embætti forsætisráðherra landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×