Háskóli Íslands og landbúnaður Erna Bjarnadóttir skrifar 15. nóvember 2021 17:30 Háskólaprófessorinn Þórólfur Matthíasson (ÞM) er sérlegur áhugamaður um landbúnað eins og glöggt kom fram í þættinum Á Sprengisandi um helgina. Því miður gat ég ekki þegið boð um að sitja þáttinn með honum þar sem ég var búin að lofa mér annað. Áður hafði hann ritað sérstaka grein á Kjarnann, sjá hér https://kjarninn.is/skodun/verkefnastjori-ms-skodar-styrki/, til að svara athugasemdum og eftir atvikum ábendingum sem ég hafði sent Vísindavefnum í tilefni af svar hans á vefnum sjá, https://www.visindavefur.is/svar.php?id=82059. Inn í það þvælir hann athugasemdum sem ég hafði ritað við grein sem Kjarninn birti (sjá hér https://kjarninn.is/skodun/fyrirsagnagledi-um-landbunad-hver-er-kjarni-malsins/) og hafði unnið upp úr fyrrnefndu svari. Athugasemdir við umfjöllun um landbúnað Við þessi skrif og ummæli sem Þórólfur lét falla í fyrrnefndum þætti vil ég gera fáeinar athugasemdir án þess að öll þau atriði sem nefna má, séu ávörpuð. Hér er um tvo punkta að ræða – annars vegar um form (hismi) og hins vegar um efnisatriði (kjarna): Um hismið: 1.Grein ÞM hefst á að gera lítið úr athugasemd minni við fyrirsögn fréttar Kjarnans um málið. Grein mín hafi birst löngu eftir að fyrirsögnin var leiðrétt. Lítum nú nánar á þetta. Í athugasemd Kjarnans sjálfs við grein mína stendur að fyrirsögnin hafi verið leiðrétt kl. 14.14 þennan dag eftir ábendingu greinarhöfundar. Greinina sendi ég enda inn kl. 14.00 þennan dag. Kjarninn sjálfur hefur svo ekki fyrir því að benda á þetta við birtingu greinar ÞM. Hér gildir því greinilega lögmálið að betra er að veifa röngu tré en öngvu. 2.Fyrrnefnt svar á Vísindavefnum birtist þann 9. nóvember sl. Þann 10. nóvember sl. sendi ég nokkrar ábendingar til ritstjóra Vísindavefsins. Með þessu var auðvitað ætlun mín að eiga siðuð samskipti um efni svarsins en ekki standa í ritdeilum sem kryddaðar yrðu með rangfærslum samanber fyrri ábendingu. 3.Eftir það rekur ÞM það sem hann kallar „aðfinnslur“. Tölvupóstur minn til Vísindavefsins hljóðaði hins vegar svona: „Meðfylgjandi eru efnislegar ábendingar við svar birt á Vísindavefnum þann 9. nóvember sl.“ Hnútukast ÞM dæmir sig sjálft að mínu mati. Um kjarnann: 4.Efnislegar ábendingar ÞM í tæplega 900 orða grein nema svo 178 orðum. Þar segir ÞM orðrétt: „Í kafla sem ber yfirskriftina „Hvernig ber að skilja aðferðafræði OECD?“ fullyrðir EB að aðferðafræði OECD dugi ekki til að meta vergan og hreinan stuðning við landbúnað. Svo segir EB: „....Vitaskuld eru þetta aldrei þau verð sem neytendur standa andspænis....“. Þarna er líklega kjarni gagnrýni EB á aðferðafræði OECD að ræða. En málið er að OECD er í þessu tilfelli ekki að meta stuðning við neytendur eins og EB lætur liggja að, heldur stuðning við framleiðendur. Og þá stendur þessi aðferðafræði fyllilega fyrir sínu!“ 5.Hér birtist misskilningur af hálfu ÞM. Í grein minni gagnrýndi ég ekki aðferðafræði OECD, heldur framsetningu hans á upplýsingum frá OECD. Sá mælikvarði OECD sem hér er til umfjöllunar er kallaður „Market price support“. Stuðningi við verð til framleiðenda. Stuðningur við markaðsverð er metinn sem = VP (verðmæti afurða á innanlandsverði til framleiðenda) - BP (innflutningsverð á mjólk sjá viðauka 4.1 í handbók OECD) x QP (magn afurðar hér mjólk sem selt er á innanlandsmarkaði). 6.Í grein minni lýsti ég þessu svona: „Við mat á viðmiðunarverði t.d. mjólkur á heimsmarkaði er byggt á heimsmarkaðsverði á smjöri og undanrennudufti. Vitaskuld eru þetta aldrei þau verð sem neytendur standa andspænis enda verið að meta tilfærslur til framleiðenda en ekki kostnað neytenda.“ Hvergi er hér minnst á stuðning við neytendur eins og ÞM gerir mér upp. Einungis er verið að leitast við að útskýra að hér er verið að meta ígildi þessa stuðnings fyrir móttakendur hans, þ.e. bændur. 7.Sú hugmyndafræði að kalla stuðning við markaðsverð til bænda, sem metinn er með aðferðum OECD, opinber útgjöld á Íslandi er heimatilbúningur ÞM. Opinber útgjöld eru útgjöld ríkis og sveitarfélaga til málaflokka eins og í þessu tilviki til landbúnaðar. Að hve miklu leyti tekjur bænda eru hærri vegna tolla á búvörur er metin stærð sem ekki fellur undir útgjöld þessara aðila og þar af leiðandi ekki talin fram í þjóðhagsreikningum. Á Sprengisandi Þórólfur lét gamminn geisa á Sprengisandi á sunnudaginn, enda getur sprettfærið verið gott þar. Það á ekki síst við séu menn einir á ferð og enginn þvælist í veginum, hvorki tófa né útilegumaður. Þegar hann hins vegar lýsti vanþóknun sinni á því að meiru væri eytt í niðurgreiðslur á eina rollu en gamlamenni, áttaði ég mig á að eflaust er manninum ekki alvara með öllu sem hann lætur frá sér fara. Sú framsetning sem háskólaprófessorinn beitir í riti og ræðu er aðfinnsluverð. Það hefur grundvallarþýðingu fyrir íslenskan landbúnað að fulltrúar háskólasamfélagsins fari rétt með þegar viðmiðunartölur frá erlendum stofnunum og fullyrðingar um stöðu landbúnaðar eru settar fram opinberlega á vegum Háskóla Íslands og fulltrúa hans. Höfundur er hagfræðingur og verkefnastjóri hjá Mjólkursamsölunni. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Landbúnaður Háskólar Erna Bjarnadóttir Mest lesið Carbfix: Stærsta framlag Íslands í loftslagsmálum heimsins Sævar Freyr Þráinsson Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir Skoðun Halldór 05.07.2024 Halldór Að óttast blokkir Ásta Logadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Carbfix: Stærsta framlag Íslands í loftslagsmálum heimsins Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Sigmundi Davíð svarað Björn Bjarnason skrifar Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar Skoðun Líf og dauði leikur á hnífsegg Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Mengum meira Heiðar Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað verður um Kára? Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að eiga tertuna og borða hana líka – svar til formanns Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hik er sama og tap Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Af hverju leka gluggar fyrr en áður? Böðvar Bjarnason skrifar Skoðun Hluta þjóðarinnar hent út í kuldann – hinn baðar sig í sólinni Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Að óttast blokkir Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Engin gúrka hjá Blaðamannafélaginu Sigríður Dögg Auðunsdóttir,Freyja Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Stórnotendur eru kjölfestan í íslenska raforkukerfinu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Ert þú í góðu netsambandi? Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Evrópa og myrkrið framundan Hilmar Þór Hilmarsson skrifar Skoðun Heilræði fyrir Nýhaldið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifar Skoðun Glútenlaust gull á grillið Anna Gunndís Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Kaupin á eyrinni Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lokunaruppboð í Kauphöllinni Baldur Thorlacius skrifar Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Ferðatryggingar og val á kreditkorti Svandís Edda Hólm Jónudóttir skrifar Skoðun Af hverju að byggja Coda Terminal? Ólafur Elínarson,Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Hljóð úr horni Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun ESB fyrir almenning Oddný G. Harðardóttir skrifar Skoðun Strámaðurinn mikli Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Árið er 2024 Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Samkeppni í nýju ljósi Páll Hermannsson skrifar Skoðun Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Rúnar Sigurjónsson skrifar Skoðun „Hæ ástin, þarf að millifæra, getur þú samþykkt beiðnina?“ Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Algeng þvæla um Evrópusambandið Jón Frímann Jónsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Coda Terminal hefur ekki áhrif á neysluvatnsból höfuðborgarsvæðisins Sigrún Tómasdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn mun leggja fram tillögu um íbúakosningu um Coda Terminal verkefnið í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun