Fótbolti

Dóttir Dennis Rodman sagði sannleikann eftir að faðir hennar birtist óvænt á leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Trinity Rodman fagnar sigurmarki Washington Spirit með liðfélögum sínum.
Trinity Rodman fagnar sigurmarki Washington Spirit með liðfélögum sínum. Getty/Ira L. Black

Trinity Rodman átti tilfinningaríka stund með föður sínum eftir leik hjá sér á dögum. Körfuboltagoðsögnin Dennis Rodman mætti þá á leik með dóttur sinni sem spilar í bandarísku atvinnumannadeildinni í fótbolta.

Trinity skrifaði um þetta á samfélagsmiðlum sínum en hún var ekkert að fela staðreyndir málsins um að Dennis karlinn hefur verið í litlum samskiptum við hana í gegnum tíðina.

Það hefur hins vegar verið mikið fjallað um feðginin í bandarískum miðlum eftir að hún komst inn í NWSL-deildina þar sem hún spilar með liði Washington Spirit.

Dennis Rodman er einn af 75 bestu leikmönnum NBA deildarinnar í körfubolta frá upphafi og er að mörgum talinn einn allra bestri frákastari sem heimurinn hefur séð. Hann varð alls fimm sinnum NBA-meistari, fyrst tvisvar með Detroit Pistons 1989-1990 og svo þrisvar með Chicag Bulls frá 1996 til 1998.

Eftir leik Washington Spirit í úrslitakeppninni á móti North Carolina Courage á mánudaginn þá sáust þau feðgin faðmast. Dennis er nú sextugur en Trinity er nítján ára.

Trinity Rodman er með 6 mörk og 6 stoðsendingar í 23 leikjum á sínu fyrsta tímabili í deildinni. Engin gaf fleiri stoðsendingar í deildinni.

Trinity skrifaði um þetta í færslu á Instagram.

„Síðasti leikur var bauð um upp á miklar tilfinningar. Já Dennis Rodman mætti á NWSL leik en hann er líka faðir minn. Í fyrsta sinn í mörg ár mætti hann og hann kom óvænt á stóran leik á mínum ferli. Ég var í áfalli, ofurliði borin, ánægð, leið og allt þar á milli,“ skrifaði Trinity Rodman.

„Faðir minn spilar ekki stórt hlutverk í mínu lífi og flestir vita það ekki en við erum ekki sammála um margt. Það líða oft mánuðir á milli þess að við hittumst eða tölumst við. Það hefur verið erfitt að vera í sviðsljósinu, bæði fyrir hann og mig,“ skrifaði Trinity.

„Samband okkar er ekki það besta en á endanum þá er hann manneskja og ég er líka manneskja. Hann er pabbi minn og ég er litla stelpan hans. Það mun aldrei breytast. Ég mun reyna að bæta mig og horfi fram á hverjum degi eins og ég vona að hann geri líka,“ skrifaði Trinity.

Það fylgir sögunni að Washington Spirit vann leikinn 1-0 í framlengingu og komst í undanúrslitin þar sem liðið mætir OL Reign 14. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×