Bíó og sjónvarp

Stranger Things stikla: Fjörugt vorfrí í Hawkins

Samúel Karl Ólason skrifar
Eleven í haldi jakkafataklæddra manna.
Eleven í haldi jakkafataklæddra manna.

Netflix birti um helgina stiklu fyrir fjórðu þáttaröð Stranger Things. Eins og svo oft áður stefnir í mikil vandræði í Hawkins og mögulega í Kaliforníu.

Eleven og Will búa í Kaliforníu en í stiklunni er Eleven að lesa bréf sem hún er að senda heim til Mike í Hawkins. Í bréfinu segist hún vera að aðlagast lífinu á vesturströndinni og eignast vini í skólanum en hún virðist vera að ljúga því að Mike þar sem hinir skólakrakkarnir virðast vera vondir við Eleven.

Hún segist hlakka til vorfrísins því þá muni hún hitta Mike og segir að þau muni eiga frábært frí saman. Við það breytir stiklan um takt.

Hermenn, skothríð, sprengingar og krípí dúkka er meðal þess sem sjá má. Eins og í fyrstu stiklunni er, við fyrstu sýn, lítið af frétta af fógetanum Jim Hopper.

Sjá einnig: Fjórða þáttaröð Stranger Things sýnd á næsta ári

Stiklan var birt á laugardaginn 6. nóvember en það er dagsetningin sem Will týndist í Hawkins árið 1983 í fyrstu þáttaröðinni og er Stranger Things dagurinn.

Fjórða þáttaröð Stranger Things verður frumsýnd á Netflix næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.