Erlent

Kosið í Níkaragva í skugga of­sókna og ger­ræðis

Þorgils Jónsson skrifar
Kosið verður í Níkaragva í dag, þar sem fastlega er búist við því að forsetinn Daniel Ortega hrósi sigri, enda hefur hann fangelsað alla helstu andstæðinga sína. Hér heldur kona ein á bolum sem sýna myndur af þjóðhetjunni  Augusto Sandino og Ortega.
Kosið verður í Níkaragva í dag, þar sem fastlega er búist við því að forsetinn Daniel Ortega hrósi sigri, enda hefur hann fangelsað alla helstu andstæðinga sína. Hér heldur kona ein á bolum sem sýna myndur af þjóðhetjunni  Augusto Sandino og Ortega. Mynd/EPA

Kosningar fara fram í Níkaragva í dag þar sem ekkert bendir til annars en að forsetinn Daniel Ortega verði hlutskarpastur og muni sitja í forsetastóli fjórða kjörtímabilið í röð.

Kosningabaráttan hefur hins vegar litast af verulegum misbrestum á lýðræðislegum hefðum, þar sem um 40 stjórnarandstæðingar hafa verið handteknir síðustu vikur, þar af allir helstu mótframbjóðendur forsetans. Þetta kemur fram í frétt Al Jazeera.

Kosið verður til forseta og þings, en Sandinistaflokkur fer með völdin í þinginu og stýrir öllum opinberum stofnunum.

Framganga Ortega hefur verið fordæmd víðast hvar, meðal annars af Josep Borell, utanríkismálastjóra ESB, sem kallaði Ortega einræðisherra og sagði kosningarnar ekkert meira en fals.

„Hr. Ortega hefur fangelsað alla mótframbjóðendur í þessum kosningum og við búumst ekki við því að af þeim hljótist lögmæt niðurstaða.“

Þá fordæmir Samband Ameríkuríkja Ortega einnig fyrir að standa ekki að frjálsum kosningum og Evrópusambandið og Bandaríkin hafa lagt refsiaðgerðir á helstu bandamenn Ortega.

Þær ráðstafanir urðu aðeins til þess að herða forsetann í ofsóknum gegn andstæðingum sínum og hann sakar alþjóðasamfélagið um afskipti af innanríkismálum Níkaragva.

Ortega hefur hert tök sín á landinu jafnt og þétt á stjórnartíð sinni. Hér er hann með eiginkonu sinni og varaforseta, Rosario Murillo. Hann útnefndi hana nýlega sem aðstoðar-forseta.Mynd/Getty

Velti harðstjóra en ber nú niður allt andóf

Ortega hóf afskipti af stjórnmálum sem ungur byltingasinni á áttunda áratugnum þar sem hann barðist gegn harðstjóranum Anastasio Somoza sem var steypt af stóli árið 1979. Hann var forseti Níkaragúa á árunum 1986 til 1990 en sneri aftur til valda árið 2007.

Síðan þá hefur hann gerst æ gerræðislegri og barið niður allt andóf með harðri hendi. Meðal annars létu 300 manns lífið þegar mótmæli voru barin niður árið 2018.

Niðurstaða ætti að liggja fyrir seint í kvöld að íslenskum tíma, en 30.000 manna lið hermanna og lögreglu sér um að tryggja öryggi á kjörstöðum, að sögn stjórnvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×