Viðskipti innlent

Jens snýr aftur í stað Jens hjá Icelandair

Þorgils Jónsson skrifar
Jens Bjarnason hefur tekið aftur við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group. 
Jens Bjarnason hefur tekið aftur við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group.  Vísir/Vilhelm

Jens Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Icelandair Group og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Jens tekur við af nafna sínum Jens Þórðarsyni, sem sagði nýlega upp eftir að hafa gegnt stöðunni frá árinu 2018, þegar hann tók einmitt við af fyrrnefndum Jens Bjarnasyni sem sat í þessum sama stóli á árunum 2015-2018.

Jens hóf fyrst störf hjá Icelandair árið 1984 og hefur gegnt þar ýmsum stöðum auk þess sem hann hefur líka starfað fyrir Flugmálastjórn og Alþjóðasamband flugfélaga (IATA).

Uppfært: Í tilkynningu frá Icelandair segir um Jens Bjarnason hafi viðtæka reynslu af flugrekstri en hann hafi verið framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair á árunum 2015 til 2018 auk þess sem hann hafi sinnt ýmsum verkefnum hjá Icelandair Group. Samhliða ráðningu Jens hafi Heiða Njóla Guðbrandsdóttir verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri rekstrarsviðs.

Heiða Njóla Guðbrandsdóttir.ICelandair

„[Jens] hóf störf við verkfræðideild Icelandair árið 1984 og um tíma var hann framkvæmdastjóri loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar. Hann var flugrekstrarstjóri Icelandair á árunum 1996-2005 og gegndi stöðu framkvæmdastjóra tækniþjónustu Icelandair (ITS) á árunum 2005-2011. Á árunum 2011-2015 var Jens forstöðumaður flugrekstrar- og tæknimála hjá alþjóðasamtökum flugfélaga, IATA, í Montreal í Kanada. Jens er með doktorsgráðu í verkfræði frá Northwestern University í Illinois í Bandaríkjunum. 

Heiða Njóla Guðbrandsdóttir hefur starfað hjá Icelandair Group frá árinu 2016, fyrst sem verkefnastjóri en síðar deildarstjóri verkefnastofu rekstrarsviðs. Síðasta ár hefur hún starfað sem forstöðumaður Operations Support á rekstrarsviði. Áður hefur Heiða Njóla meðal annars starfað sem þjónustustjóri hjá Marorku og sérfræðingur í ástandsstýrðu viðhaldi hjá Rio Tinto Alcan á Íslandi. Heiða Njóla er með MSc gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.“


Tengdar fréttir

Jens hættir hjá Icelandair

Jens Þórðarson, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×