Erlent

Vopna­vörðurinn segir ein­hvern hafa sett skot í byssuna

Samúel Karl Ólason skrifar
Rust var teki upp á Bonanza Creek búgarðinum í Nýju Mexíkó.
Rust var teki upp á Bonanza Creek búgarðinum í Nýju Mexíkó. AP/Jae C. Hong

Vopnavörður kvikmyndarinnar Rust segir mögulegt að einhver hafi sett hefðbundið byssuskot í byssu sem notuð var við æfingar fyrir tökur. Leikarinn Alec Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halynu Hutchins til bana með byssunni.

Hannah Gutierrez Reed, vopnavörðurinn, segist hafa skoðað byssuna og segist ekki vita hvernig byssukúla rataði í hana.

„Hver setti hana þarna og af hverju er lykilspurningin,“ sagði Gutierrez Reed í yfirlýsingu sem lögmaður hennar sendi út í gærkvöldi. Í yfirlýsingunni segir að hún hafi haft byssurnar læstar í skáp og þar hafi þær verið í hádegishléinu þann 21. október þegar Hutchins var skotin.

Sjá einnig: Baldwin rýfur þögnina um ­skotið sem banaði Halynu Hutchins

„Hannah gerði allt sem í hennar valdi stóð til að tryggja öryggi á tökustað,“ segir í yfirlýsingunni samkvæmt AP fréttaveitunni. „Hún skoðaði skotin sem hún setti í byssurnar þennan dag. Hún skoðaði alltaf skotin.“

Þar segir einnig að hún hafi sýnt David Halls, aðstoðarleikstjóra Rust, byssuna og skotin sem hafi verið í henni áður en hann tók við henni.

Halyna Hutchins dó þegar skot hljóp af úr byssu við tökur kvikmyndarinnar Rust.Getty/Mostafa Bassim

Halls rétti Baldwin byssuna og tilkynnti að hún væri óhlaðin. Þegar leikarinn var svo að æfa það að draga byssuna upp úr slíðri fyrir framan myndavél hljóp úr henni skot sem hæfði Hutchins og Joel Souza, leikstjóra myndarinnar.

Sjá einnig: Halls viðurkennir að hafa ekki skoðað byssuna nógu vandlega

Guttierrez Reed hefur áður sagt að hún viti ekki hvaðan skotið kom en samkvæmt reglum á tökustöðum vestanhafs og víðar eru hefðbundin skot bönnuð. Fógetinn í Santa Fe hefur sagt að um fimm hundruð skot hafi fundist á tökustað. Þar hafi bæði verið um að ræða púðurskot, gerviskot og skot sem talin eru vera hefðbundin.

Sjá einnig: Telja hefðbundna kúlu hafa verið í byssunni

Fógetinn hefur sömuleiðis sagt að vísbendingar hafi fundist um að starfsmenn Rust hafi farið gáleysislega með öryggisreglur.


Tengdar fréttir

Skotvopnið var „alvöru“ og ákærur ekki útilokaðar

Mary Carmack-Altwies, yfirsaksóknari í Santa Fe-sýslu, segir ekki útilokað að ákærur verði gefnar út í tengslum við andlát tökustjórans Halyna Hutchins. Þá segir hún ekki rétt að tala um skotvopnið sem varð Hutchins að bana sem leikmun (e. prop), þar sem um raunverulegt antík skotvopn sé að ræða.

Að­stoðar­leik­stjóri Rust starfaði við tökur á Ís­landi

Aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, sem spjótin beinast að vegna dauða kvikmyndatökustjórans Halynu Hutchins, varði tíma hér á landi veturinn 2016/17 vegna framleiðslu myndarinnar Arctic. Dave Halls var einnig aðstoðarleikstjóri þeirrar myndar sem var meðal annars framleidd af Pegasus og Einari Þorsteinssyni.

Trump yngri selur boli og gerir grín að Baldwin

Stjórnmálamenn á hægri væng Bandaríkjanna og bandamenn Donalds Trump, fyrrverandi forseta, hafa gagnrýnt og gert grín að leikaranum Alec Baldwin eftir að hann hleypti skoti af byssu á setti og varð þannig kvikmyndatökustjóranum Halynu Hutchins að bana. Donald Trump yngri, elsti sonur forsetans fyrrverandi seldi til að mynda boli þar sem grín var gert að dauða Hutchins.

Hafði áður verið rekinn úr töku­liði vegna byssu­­skots á setti

Aðstoðarleikstjóri kvikmyndarinnar Rust, sem leikarinn Alec Baldwin vann að þegar hann hleypti skoti af byssu á setti og varð þannig kvikmyndatökustjóranum Halynu Hutchins að bana, var rekinn úr verkefni árið 2019 eftir sambærilegt atvik. Þar slasaðist meðlimur í tökuliðinu þegar skot hljóp úr byssu á setti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×