Viðskipti innlent

Bræða hraun fyrir opnum tjöldum á nýrri sýningu í Reykja­vík

Eiður Þór Árnason skrifar
Sýningin í Vík í Mýrdal er mikið sjónarspil.
Sýningin í Vík í Mýrdal er mikið sjónarspil. Aðsend

Þremur árum eftir að Icelandic Lava Show opnaði fyrstu lifandi hraunsýningu heims í Vík í Mýrdal hefur stefnan verið tekin á Reykjavík.

Félagið hefur undirritað samkomulag við EB Invest ehf. sem kemur inn í eigendahóp félagsins með fjármagn til að standa straum af opnun á nýrri sýningu. Fram kemur í tilkynningu að stefnt sé á að opna hana á Granda í Reykjavík næsta sumar og kemur hún til viðbótar við sýninguna sem fyrir er.

„Ég fór á sýningu Icelandic Lava Show síðastliðið vor og var uppnuminn að henni lokinni. Í marga daga á eftir leitaði hugurinn aftur til hennar og ég sá ótal tækifæri í stöðunni,“ segir Birgir Örn Birgisson, sem fer fyrir EB Invest.

„Þegar viðræður hófust við stofnendur og eigendur Icelandic Lava Show var ljóst að við deildum sömu framtíðarsýn og hópurinn er afar samstilltur. Við ætlum okkur stóra hluti í framtíðinni bæði hér heima og erlendis,“ bætir hann við.

Náðst hefur samkomulag um aðkomu nýrra fjárfesta að félaginu til að fjármagna frekari vöxt og uppbyggingu þess.Aðsend

Aðrar áherslur í Reykjavík

Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnendur Icelandic Lava Show, segja að sýningarnar í Vík og Reykjavík muni styðja vel við bakið á hvor annarri. Í Vík sé áherslan að miklu leyti á Kötlu, eina hættulegustu eldstöð heims, og hvernig það sé fyrir íbúa svæðisins að búa við þá stöðugu ógn.

„Í Reykjavík verður megináherslan auðvitað líka á rauðglóandi hraunið en þar munum við nálgast viðfangsefnið meira út frá Íslandi í heild sinni og hvaða hættur leynast hérna á höfuðborgarsvæðinu. Handritsvinnan er langt komin og við getum lofað magnaðri upplifun,“ segir Ragnhildur í tilkynningu.

Starfsemi Icelandic Lava Show felst í að endurskapa aðstæður eldgoss með því að bræða alvöru hraun upp í 1100°C og hella því inn í sýningarsal fullan af fólki. Heimsfaraldurinn reyndist áskorun fyrir ferðaþjónustufyrirtækið en að sögn stjórnenda hefur gengið vel að vinna úr þeim aðstæðum og staða félagsins aldrei verið sterkari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×