Fimm mörk og tvö rauð er Ari Freyr hafði betur í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 31. október 2021 16:35 Ari Freyr í leik með Norrköping. Norrköping Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði Norrköping er liðið vann 3-2 sigur gegn Elfsborg í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Hákon Rafn Valdimarsson stóð vaktina í marki Elfsborg.
Gestirnir í Elfsborg komust yfir strax á 14. mínútu með marki frá Jeppe Okkels áður en Carl Bjork jafnaði metin fimm mínútum síðar. Staðan var þó aðeins jöfn í þrjár mínútur, en Per Frick kom gestunum yfir á ný á 22. mínútu. Tíu mínútum síðar urðu liðsmenn Elfsborg þó fyrir áfalli þegar Simon Strand fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt þegar enn var tæpur klukkutími eftir af leiknum. Heimamenn náðu þó ekki að nýta sér liðsmuninn í fyrri hálfleik og staðan því 2-1, Elfsborg í vil, þegar gengið var til búningsherbergja. Það var ekki fyrr en á 79. mínútu að liðsmenn Norrköping náðu að nýta sér liðsmuninn þegar Linus Wahlqvist jafnaði metin fyrir heimamenn og Samuel Adegbenro tryggði liðinu 3-2 sigur fimm mínútum síðar. Frederik Holst fékk svo sitt annað gula spjald á þriðju mínútu uppbótartíma og því aðeins níu leikmenn Elfsborg eftir inni á vellinum. Norrköping situr nú í sjötta sæti deildarinnar með 43 stig eftir 26 umferðir, fimm stigum á eftir Elfsborg sem situr í öðru sæti. Með sigri hefði Elfsborg lyft sér upp að hlið Malmö í efsta sæti deildarinnar.
Fótbolti Sænski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Luke Littler grét eftir leik Sport Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Fótbolti Jackson komst upp fyrir Eið Smára Enski boltinn Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Enski boltinn Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Fótbolti Versta frumraun í úrvalsdeild? Körfubolti Tapsár Tyson Fury: „Hann fékk jólagjöfina sína of snemma“ Sport Michael Schumacher verður afi Formúla 1 Fleiri fréttir „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Sjá meira