Viðskipti innlent

Wind dregur saman seglin og fer úr landi

Eiður Þór Árnason skrifar
Gulu hjólin hafa fram að þessu verið áberandi víðs vegar um borgina.
Gulu hjólin hafa fram að þessu verið áberandi víðs vegar um borgina. Vísir/Vilhelm

Rafhlaupahjólaleigan Wind hefur hætt starfsemi hér á landi en rúmt ár er síðan þýska fyrirtækið opnaði þjónustu sína í Reykjavík. Notendur Wind hafa átt í miklum vandræðum að nálgast rafhlaupahjól leigunnar að undanförnu.

Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, starfandi samgöngustjóri hjá Reykjavíkurborg, segir að fulltrúar Wind hafi tilkynnt borginni fyrr í haust að fyrirtækið hygðist hætta að þjónusta Reykjavík.

„Það eina sem við í rauninni fengum að vita var að þetta hafði ekkert með Reykjavík að gera eða samskipti við okkur heldur hafi þetta bara verið ákvörðun sem hafi verið tekin af stjórnendum fyrirtækisins.“

Leiga á rafhlaupahjólum er leyfisskyld starfsemi í Reykjavík og þurfa fyrirtæki að viðhalda ákveðinni hjólanýtingu til að viðhalda starfsleyfinu. Guðbjörg segir að Wind hafi ekki átt í vandræðum með að ná því lágmarki.

Var strax stærsti aðilinn á markaði

„Við viljum upplýsa þig um að þjónustu okkar hefur verið lokað á Íslandi og getur þú þar af leiðandi ekki lengur leigt rafhlaupahjólin okkar. Að svo stöddu liggja ekki fyrir upplýsingar um endurkomu okkar en við þökkum þér fyrir að velja WIND og vera tryggur viðskiptavinur,“ segir í svari Wind til viðskiptavinar.

Þá kemur fram að notendur sem eigi enn ónotaða inneign hjá Wind fái hana endurgreidda á næstu vikum en einnig sé hægt að óska eftir fljótari afgreiðslu.

Minni eftirspurn yfir vetrarmánuðina

Wind segir í svari við fyrirspurn Vísis að rafhlaupahjólin hafi notið mikilla vinsælda í Reykjavík yfir sumartímann en ákveðið hafi verið að stöðva þjónustuna nú þegar veturinn nálgast. Ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort Wind snúi aftur í borgina næsta sumar.

Pawel Bartoszek, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, segist ekki missa svefn yfir brotthvarfi gulu hjólanna.

„Þessi markaður er mjög frjór og maður hefur ekki miklar áhyggjur af þessu. Ég er líklega búinn að ganga framhjá svona fimmtán hjólum á meðan ég fór núna upp Laugaveginn.“

Wind kom með krafti inn á íslenskan rafhlaupahjólamarkað þann 5. september 2020 og var frá fyrsta degi með tvöfalt fleiri hjól en næsti samkeppnisaðili, eða alls 600 talsins. 

Gulu hjólin, einkennismerki Wind, nutu þó nokkurra vinsælda og voru strax mjög áberandi í Reykjavík. Rétt rúmu ári síðan hafði sú staða skyndilega breyst.

Wind Mobility var stofnað árið 2017 og starfrækir hjóla- og rafhlaupahjólaleigur í minnst sex öðrum ríkjum en Írland bættist í hópinn í ágúst síðastliðnum. 

Vísir hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Aðeins fjórir þurft að leggjast inn eftir milljón ferðir

Fjórir hafa þurft að leggjast inn á Landspítala eftir slys á rafhlaupahjóli en almennt eru slys á slíkum fararskjótum ekki alvarleg. Yfirlæknir bráðamóttöku bendir á að fá slys verði á rafhlaupahjólum miðað við hversu margar ferðir eru farnar á þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×