Innlent

Þurfa að æfa í kaldri áhaldageymslu

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
visir-img

Frjálsíþróttafólk þarf að æfa í kaldri áhaldageymslu á meðan rafíþróttamótið í Laugardalshöll fer fram. Formaður Frjálsíþróttasambands Íslands segir að stöðugt sé þrengt að iðkendum, sem meðal annars hafi skilað hátt í þrjátíu prósenta brottfalli úr íþróttinni.

„Núna fram að áramótum, sem dæmi, er 31 dagur sem er frátekinn í Frjálsíþróttahöllinni undir viðburði, sem er veruleg þrenging að okkur og sérstaklega Reykjavíkurfélögunum sem eru að reyna að halda uppi eðlilegum æfingum fyrir sína hópa,“ segir Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasambandsins.

Hann segir fækkun iðkenda mikið áhyggjuefni.

„Auðvitað kemur þetta sér illa að byggja upp starf sem á að vera reglubundið. Krakkar að koma á æfingu þrisvar sinnum í viku á föstum vikum, þegar það falla niður kannski tvær eða þrjár vikur í röð og hvað þá í sex vikur eins og í kringum rafíþróttamótið,“ segir Guðmundur og bætir við að aðstaðan hafi sömuleiðis veruleg áhrif.

„Til dæmis lyftingaklefinn sem er svo mikilvægur í uppbyggingu, og það er uppbyggingartímabil núna – það er búið að færa hann yfir í áhaldageymsluna sem bæði er köld og gólfið hallar.“

Kröfur um að byggja upp afreksfólk og taka þátt á stórmótum séu varla raunhæfar. Hins vegar hafi verið lagðar fram tillögur um þjóðarleikvang norðan við Suðurlandsbraut, sem gæti leyst þennan hnút.

„Þetta skilar sér þannig að við fáum ekki fleiri afreksmenn. Þetta hefur atvikast þannig hjá okkur að við höfum í auknum mæli verið að senda fólk erlendis með því að reyna að ýta því í skóla úti til að komast í toppaðstöðu til að æfa úti í heimi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×