Innlent

Togari kom með sprengju til hafnar á Akur­eyri

Kjartan Kjartansson skrifar
Björg EA á siglingu í Eyjafirði.
Björg EA á siglingu í Eyjafirði. Samherji

Séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar er á leið til Akureyrar vegna tundurdufls sem togarinn Björg EA kom með til hafnar við athafnasvæði Útgerðarfélags Akureyrar í dag. Bryggjusvæðið var rýmt og vinnslu í fiskvinnsluhúsi hætt.

Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að ákveðið hafi verið að senda séraðgerðasveitina á bíl norður eftir að tilkynning barst frá áhöfn íslensks fiskiskips um að það hefði fengið sprengju í veiðarfærin. Af myndum að dæma telja sérfræðingar Gæslunnar líkur á að hún sé svonefnd djúpsprengja, líklega frá síðari heimsstyrjöldinni.

Vanalega sé farið með slíkar sprengjur aftur út á sjó þar sem þær eru sprengdar á ákveðnu dýpi. Ásgeir segir líklegast að sú verði raunin nú en það sé í höndum séraðgerðasveitarinnar að meta það þegar hún kemur norður.

Kári Erlingsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, segir að skipið hafi komið til hafnar í hádeginu. Sprengjan sé á bryggjunni. Í öryggisskyni hafi bryggjusvæðið verið rýmt. Stöðva þurfti starfsemi í frystihúsi ÚA vegna þess.

Í tilkynningu frá Samherja kemur fram að tundurdufl hafi komið í veiðarfæri togarans Bjargar EA. Það hafi gerst í síðasta holi veiðiferðarinnar. Duflið sé illa farið og áhöfnin hafi talið að það væri gömul járntunna. Við nánari athugun hafi hluturinn reynst vera tundurdufl.

Ákveðið hafi verið að rýma eitt hundrað metra radíus frá bryggjunni og vinnslu hætt í fiskvinnsluhúsi á meðan til að gæta fyllsta öryggis.

Þetta er annað skiptið á rétt rúmu árið sem Björg EA fær sprengju í veiðarfæri. Brot úr breskri sprengju úr síðari heimsstyrjöldinni kom í trollið utan við Melrakkasléttu 3. janúar í fyrra.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×