Skoðun

Að lofa góðu veðri

Indriði Stefánsson skrifar

Almennt hafa kosningar á Íslandi farið fram að vori enda er veður þá almennt skárra og færðin bærileg. Nú gengur á með alls kyns lituðum veðurviðvörunum sem tækist að skreyta heilt jólatré.

Við hefðum klárlega kosið að kjósa á öðrum tíma enda viðbúið að þetta yrði staðan. En þrátt fyrir viðvaranir og veður er mikilvægt að við skundum öll á kjörstað - og í þessum kosningum getum við meira að segja haft áhrif á veðrið.

Það er nefnilega svo að í þessum kosningum mun ráðast hvernig við tökumst á við loftslagsvandann næstu fjögur árin. Undanfarinn áratug hafa æ fleiri spár ræst um heitustu ár og veðurofsa. Við höfum hins vegar lengi vitað hver viðbrögðin þurfa að vera til að ekki fari enn verr.

Við höfum núna val um að kjósa flokka sem vilja að Ísland verði leiðandi í loftslagsmálum - eða flokka sem vilja að aðgerðir í loftslagsmálum takmarkist af kröfum atvinnulífsins. Við getum ekki frestað því lengur að bregðast við, sem yrði bara ávísun á að vandinn verði enn verri. Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna er í nóvember og þá verðum við að vera búin að ákveða okkur: Hvernig framtíð viljum við?

Vatnaskil

Fyrir okkur sem viljum grípa til aðgerða í loftslagsmálum er komið að vatnaskilum. Píratar hafa einsett sér að taka á loftslagsmálum og vilja að lýst verði yfir neyðarástandi. Í framhaldinu vilja Píratar að gripið verði til margvíslegra aðgerða þar sem enginn angi samfélagsins er undanskilinn. Það er algjörlega óþarfi að taka mig trúanlegan fyrir þessu: Ungir umhverfissinnar mátu loftslagsstefnur flokkana og af öllum flokkunum fengu Píratar hæstu einkunnina. Við erum einfaldlega með bestu áætlunina og baráttuandann til að hrinda henni í framkvæmd.

Til að koma loftslagsmálum að er mikilvægt að kjósa framboð með trúverðuga stefnu í loftslagsmálum og mikilvægt að þau verði leiðandi í næstu ríkisstjórn. Þannig getur Ísland sett sér metnaðarfull markmið í átt að sjálfbærni, náttúruvernd og samdrætti í losun og hætti að skipa sér sess með mengandi þjóðum. Við höfum alla burði til að vera grænasta þjóð í heimi og þangað skulum við stefna.

Vandamál tengd hamfarahlýnun eru langt því frá bara hækkun hitastigs, því fylgir líka hækkandi sjávarborð, súrnun sjávar og öflugri fellibyljir - en við fáum einmitt leifar eins slíks í heimsókn á kjördag. Það hefur aldrei verið mikilvægara að þú kjósandi góður mætir á kjörstað og greiðir atkvæði. Hver veit nema það atkvæði stuðli að betra veðri í framtíðinni.

Höfundur er tölvunarfræðingur og frambjóðandi á lista Pírata til Alþingiskosninga 2021.




Skoðun

Sjá meira


×