Ronaldo toppar Messi með stjarnfræðilegum tekjum Sindri Sverrisson skrifar 23. september 2021 09:31 Cristiano Ronaldo ætti að eiga í sig og á það sem eftir er ævinnar. Getty/Laurence Griffiths Cristiano Ronaldo kemur til með að þéna um það bil 16,2 milljarða króna, fyrir skatt, á sinni fyrstu leiktíð eftir endurkomuna til Manchester United.
Þetta er mat Forbes sem segir að Ronaldo komist þar með á ný upp fyrir Lionel Messi og á topp listans yfir tekjuhæstu knattspyrnumenn heims. Ronaldo, sem er orðinn 36 ára, sneri aftur til United frá Juventus í ágúst á meðan að Messi yfirgaf uppeldisfélag sitt Barcelona og gekk í raðir PSG. Ronaldo, sem á yfir 500 milljónir fylgjenda samanlagt á samfélagsmiðlum, mun eins og fyrr segir þéna 16,2 milljarða króna (125 milljónir Bandaríkjadala) á leiktíðinni. Rétt rúmlega helmingur teknanna eru laun og bónusar frá Manchester United en afgangurinn í gegnum auglýsingasamninga og samstarf við fyrirtæki á borð við Nike, Herbalife, Clear og fyrirtæki Ronaldos; CR7. Messi er talinn þéna um 14,3 milljarða króna (110 milljónir dala) á sinni fyrstu leiktíð hjá PSG. Samkvæmt Forbes fær hann aðeins hærri laun hjá PSG en Ronaldo hjá United, eða 9,7 milljarða samanborið við 9,1 milljarð króna sem Ronaldo fær hjá United. Restina fær Messi í gegnum auglýsingasamninga. Liðsfélagar Messis eru svo næstir á listanum en Neymar er sagður þéna 12,3 milljarða króna og Kylian Mbappé 5,6 milljarða.
Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira