Innlent

Telur að hags­muna­tengsl gætu skýrt vilja sveitar­stjórnar til að loka hjól­hýsa­svæðinu

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Hrafnhildur Bjarnadóttir, formaður Samhjóls, sem er Félag hjólhýsaeigenda á Laugarvatni.
Hrafnhildur Bjarnadóttir, formaður Samhjóls, sem er Félag hjólhýsaeigenda á Laugarvatni. Vísir/Magnús Hlynur

Talsmaður hjólhýsaeigenda við Laugarvatn telur að hagsmunaárekstrar í sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafi áhrif á vilja til að loka svæðinu. Hún segir að málinu sé hvergi nærri lokið.

Sveitarstjórnin hefur hafnað beiðni Samhjóls, samtaka hjólhýsaeigenda á Laugarvatni, um að heimila fjögurra mánaða viðveru hjólhýsa á svæðinu og að þau fengju að standa þar yfir vetrartímann með stöðuleyfi.

Fyrst var ákveðið að endurnýja ekki samninga við hjólhýsaeigendur vegna þess að brunavörnum var ábótavant.

Koma alltaf nýjar ástæður fyrir lokuninni

„Það er allavega margt sem okkur finnst bara frekar furðulegt og það er margt sem við erum búin að bjóða,” segir Hrafnhildur Bjarnadóttir, formaður Samhjóls.

Hún segir sveitarstjórnina sífellt koma með nýjar ástæður fyrir lokun svæðisins þegar hjólhýsaeigendur bjóði fram lausnir sínar á þeim fyrri.

Fyrst hafi það verið brunavarnamálið, næst vandræði í byggðaskipulagi og „sú nýjasta heitir samkeppnissjónarmið, aðallega,“ segir Hrafnhildur.

„Og okkur sárnar að hérna rétt austan við okkur sé búið að opna heilsárshjólhýsasvæði í sama sveitarfélagi, undir sömu sveitarstjórn og byggingarfulltrúum og öllu þessu,” heldur hún áfram.

Skýr hagsmunatengsl

Það svæði opnaði í sumar í um korters fjarlægð frá hjólhýsasvæði Samhjóla og er í einkaeigu.

„En með, eins og maður myndi segja kannski, góð tengsl. Eigandi þess svæðis er sem sagt einn af eigendum lögmannsstofu á Suðurlandi sem vinnur fyrir Bláskógabyggð gegn okkur. OG okkur náttúrulega stingur það illt í hjartað,” segir Hrafnhildur.

Henni þykir staðan furðuleg.

„Ég myndi kalla þetta bara góða hagsmunaárekstra og ég er ekki alveg að skilja svona, að þetta geti átt sér stað.”

Hafa hjólhýsaeigendur á svæðinu gefið upp alla von?

„Nei, alls ekki. Uppgjöf er ekki til í okkar orðaforða, eins og sveitarstjórn hefur fengið að heyra. Og það verður þannig áfram. Við ætlum að halda þessu máli á lofti," segir Hrafnhildur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×