Umsvifamesti miðlari grófs barnaníðsefnis dæmdur í 27 ára fangelsi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 16. september 2021 07:52 Marques yfirgefur dómhús á Írlandi eftir að bandarísk yfirvöld kröfðust framsals. Getty/Niall Carson Eric Eoin Marques, 36 ára, hefur verið dæmdur í 27 ára fangelsi í Bandaríkjunum fyrir að setja upp og reka vefþjóna sem hýstu 8,5 milljónir mynda og myndskeiða af barnaníð. Þarlend yfirvöld segja Marques umsvifamesta miðlara barnakláms sem sögur fara af.
Marques, sem er með tvöfalt ríkisfang, bæði á Írlandi og í Bandaríkjunum, var handtekinn á Írlandi árið 2013 og framseldur til Bandaríkjanna árið 2019. Hann rak vefþjóna á djúpvefnum þar sem notendur gátu nálgast afar gróft barnaníðsefni, meðal annars myndir og myndskeið af nauðgun og pyntingum ungbarna. Yfirvöld sögðu mikið af efninu vera að koma fyrir augu þeirra í fyrsta sinn, sem þýðir að það hafði ekki verið flaggað og sett í gagnabanka sem notaðir eru til að bera kennsl á barnaníðsefni á netinu. Þegar hann kvað upp dóminn líkti dómarinn Theodore Chuang Marques við fíkniefnabarón og sagði glæpi hans „viðurstyggilega“. Marques bað fórnarlömb ofbeldisins fyrirgefningar og biðlaði um annað tækifæri. Saksóknarinn í málinu sagði Marques hafa skapað samfélag á netinu þar sem barnaníðingar gátu misþyrmt börnum og deilt hryllingnum með öðrum níðingum. „Þeir hópuðu sig saman og misnotuðu börn kynferðislega,“ sagði Ralph Paradiso. „Og þeir höfðu ánægju af misnotkuninni.“
Bandaríkin Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira