Bíó og sjónvarp

Íslensk hryllingsmynd frumsýnd á virtri kvikmyndahátíð í Bandaríkjunum

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá stökustað íslensku kvikmyndarinnar It Hatched.
Frá stökustað íslensku kvikmyndarinnar It Hatched. Aðsent

Kvikmyndin It Hatched í leikstjórn Elvars Gunnarssonar, verður heimsfrumsýnd á hinni virtu Austin Film Festival í október næstkomandi.

Þetta er í 28. sinn sem Austin kvikmyndahátíðin er haldin og voru fyrstu myndir hátíðarinnar tilkynntar í gær og var myndin sérstaklega nefnd í kynningartexta hátíðarinnar. Elvar á handrit myndarinnar og sá einnig um leikstjórn. 

It Hatched fjallar um Pétur og Miru sem flytja frá erilsamri stórborg í Bandaríkjunum á afskekktan stað á Vestfjörðum í leit að frið og ró. Áform þeirra raskast þó þegar forn vættur gerir vart við sig undir kjallara hússins og Mira verpir eggi.

Stilla úr It Hatched, sem frumsýnd verður á Austin Film Festival.Aðsent

Með aðalhlutverk í myndinni fara Gunnar Kristinsson og Vivian Ólafsdóttir en önnur burðarhlutverk eru í höndum Þórs Túliníusar, Halldóru Geirharðsdóttur, Magnúsar "Móra" Ómarssonar, Björns Jörundar og Halldórs Gylfasonar. 

Myndin er framleidd af Vilius Petrikas, Bent Kingo Andersen, Guðfinn Ými Harðarsyni, Birki Sigurjónssyni, Heimi Bjarnasyni, Búa Baldvinssyni og í samstarfi við Hero Productions. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.