Spánar­meistarar Atlético byrja á sigri

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Luis Suárez varð Spánarmeistari með Atl. Madríd á síðustu leiktíð. Liðið stefnir á að verja titilinn í ár.
Luis Suárez varð Spánarmeistari með Atl. Madríd á síðustu leiktíð. Liðið stefnir á að verja titilinn í ár. EPA-EFE/RODRIGO JIMENEZ

Angel Correa sá til þess að Spánarmeistarar Atlético Madrid hófu tímabilið á sigri er liðið mætti Elche í fyrstu umferð La Liga, spænsku úrvalsdeildarinnar. Lokatölur 1-0, einkar óvænt eða hitt þó heldur.

Nýtt tímabil en sama gamla Atlético er mætt til leiks. Lærisveinar Diego Simeone elska að halda marki sínu hreinu og vinna oftar en ekki 1-0. Það var raunin í dag er liðið vann eins marks sigur þökk sé marki Correa. Nýi maðurinn Rodrigo de Paul með stoðsendinguna.

Lokatölur því eins og áður sagði 1-0 og Atlético hefur titilvörnina á sigri.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira