Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi komið í 6,1 prósent og gert ráð fyrir á­fram­haldandi lækkun

Eiður Þór Árnason skrifar
Alls hafði 5.361 atvinnuleitandi verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok júlí.
Alls hafði 5.361 atvinnuleitandi verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok júlí. Vísir/Vilhelm

Skráð atvinnuleysi mældist 6,1 prósent í júlí og lækkar umtalsvert frá júní þegar það var 7,4 prósent. Alls voru 12.537 atvinnulausir í lok júlí samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar eða 6.562 karlar og 5.975 konur.

Fækkaði atvinnulausum körlum um 966 frá júnílokum og atvinnulausum konum um 813. Af þeim 1.779 atvinnulausu sem fækkaði á atvinnuleysisskrá í júlí fóru um 700 á ráðningarstyrk.

Atvinnuleysi var 9,1 prósent í maí, 10,4 prósent í apríl, 11,0 prósent í mars og 11,4 prósent í febrúar 2021. Atvinnuleysi var mest á Suðurnesjum í júlí eða 10,9 prósent en var 13,7 prósent í júní. Næst mest var atvinnuleysið 6,7 prósent á höfuðborgarsvæðinu og lækkaði úr 7,9 prósent.

Þetta kemur fram í nýrri vinnumarkaðsskýrslu Vinnumálastofnunar. Stofnunin spáir því að atvinnuleysi minnki áfram í ágúst, meðal annars vegna sérstakra atvinnuátaka stjórnvalda og aukinna umsvifa og verði á bilinu 5,3 prósent til 5,7 prósent.

Vinnumálastofnun

Mikil fjölgun í fjölda langtímaatvinnulausra milli ára

Alls hafði 5.361 atvinnuleitandi verið án atvinnu í meira en tólf mánuði í lok júlí og fækkaði um 457 frá júní. Þeir voru 2.854 í júlílok 2020. Gera má ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem hafa verið án atvinnu í yfir 12 mánuði muni fara minnkandi næstu mánuði.

Alls voru 4.932 erlendir atvinnuleitendur án atvinnu í lok júlí og fækkaði um 772 frá júní. Atvinnulausum fækkaði í öllum atvinnugreinum í júlí 2021 frá mánuðinum á undan, mest í ferðatengdri starfsemi á borð við ferðaþjónustu, gistiþjónustu og farþegaflutningum, eða á bilinu 22 prósent til 25 prósent. 

Einnig fækkaði atvinnulausum talsvert í menningartengdri starfsemi eða um 14 prósent milli mánaða. Í öðrum atvinnugreinum var fækkun atvinnulausra á bilinu 6 til 15 prósent. Í verslun og byggingariðnaði fækkaði atvinnulausum frá júní um tæp 10 prósent.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Bjartsýn á að atvinnuleysi minnki áfram

Atvinnuleysi dróst saman um 2,8% á milli mánaða og stendur í tæpum sex prósentum samkvæmt nýju mati Hagstofunnar. Forstjóri Vinnumálastofnunar telur víst að áfram muni draga úr atvinnuleysi í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×