Innlent

Kalla starfs­fólk úr sumar­leyfum vegna á­lags og opna nýja Co­vid-deild

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Runólfur Pálsson er forstöðumaður lyflækninga og bráðaþjónustu Landspítalans.
Runólfur Pálsson er forstöðumaður lyflækninga og bráðaþjónustu Landspítalans. Vísir

Einn liggur í öndunarvél á Landspítalanum vegna Covid-19 og er það í fyrsta sinn sem sjúklingur hefur þurft á slíkri aðstoð að halda í þessari fjórðu bylgju faraldursins. Unnið er að opnun nýrrar Covid-deildar á spítalanum og hefur þurft að kalla starfsfólk úr sumarleyfum vegna álags.

Staðan á Covid göngudeildinni þyngist dag frá degi enda 1.244 í einangrun.

„Í þeim hópi eru all nokkrir sem eru með talsvert mikil einkenni eða jafnvel mjög mikil,“ sagði Runólfur Pálsson, yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítala í kvöldfréttum Stöðvar2.

Þar af tveir rauðmerktir en tvísýnt er hvort þeir þurfi á spítalainnlögn að halda.

„Og tuttugu og fimm gulir eða með meðal mikil einkenni þannig þetta er orðinn ansi þungur róður þarna.“

Von á frekari innlögnum á næstu dögum

Runólfur segir að róðurinn sé jafnframt að þyngjast verulega á Landspítalanum. Fimm lögðust inn á spítalann í gær og einn nú síðdegis í dag. Alls eru nú sextán inniliggjandi. Tveir á gjörgæslu. Einn í öndunarvél. Runólfur á von á frekari innlögnum á næstu dögum.

„Þegar fjöldinn er orðinn svona mikill þá má búast við einstaklingum sem veikjast meira eða jafnvel alvarlega. Það er þarna fólk með alvarlega undirliggjandi sjúkdóma og svo aðrir sem eru óbólusettir og því ekki með neina vörn gegn alvarlegum veikindum.“

Erfiðasti tími ársins vegna sumarleyfa

Unnið er að opnun nýrrar Covid-deildar á spítalanum. Runólfur segir stöðuna þar tvísýna. Ef álag haldi áfram að aukast verði staðan illviðráðanleg.

„Við erum á erfiðasta tíma ársins hvað snertir mönnun vegna sumarleyfa þannig það er bara mjög erfitt. Við verðum þá að reyna að kalla fólk inn úr leyfum og við erum þegar að því en þá þarf að gera það í auknum mæli. Það er ekki á vísan að róa með það

784 tilfelli í vikunni

Að minnsta kosti 67 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Af þeim voru 36 utan sóttkvíar. 50 þeirra sem greindust í gær voru fullbólusettir og 15 óbólusettir.

Alls greindust 784 smitaðir i vikunni, þar af 153 um helgina þegar færri sýni voru tekin en dagana á undan. Samskiptastjóri almannavarna á von á að smituðum fjölgi eftir helgina og biðlar til fólks að mæta í sýnatöku við minnstu einkenni. Upplýsingafundur almannavarna verður haldinn á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×