Innlent

Líkin of hátt uppi til að vera sótt með þyrlum

Snorri Másson skrifar
K2 er annað hæsta fjall í heimi.
K2 er annað hæsta fjall í heimi. Mynd/Aðsend

Stefnt er að því að sækja það sem talið er vera lík fjallgöngumannsins John Snorra Sigurjónssonar af K2 við fyrsta tækifæri. Hópurinn sem fann líkið var kominn hærra en nokkur annar hópur hafði komist frá því í febrúar, þegar John Snorri og félagar hans misstu samband og voru í kjölfarið taldir af.

Nú er talið að þeir hafi fundist í rúmlega 8.000 metra hæð, þar sem oft myndast flöskuháls í fjallinu vegna hættulegrar íshellu. Til þess að hægt sé að flytja lík John Snorra og félaga hans niður kann að reynast nauðsynlegt að þau séu flutt neðar í fjallið af göngumönnum, enda drífa þyrlur pakistanska hersins ekki nógu hátt upp í fjallið.

Þremenningarnir Juan Pablo Mohr (t.v.), Ali Sadpara (f.m.) og John Snorri Sigurjónsson (t.h.) fórust á leið upp á topp K2 í febrúar.Vísir

Hópur á vegum ferðaskrifstofunnar Lela Peak Expedition fann líkin, eftir að tilraunir sérstaks leitarhóps höfðu ekki borið árangur. Einn eigenda ferðaskrifstofunnar segir í samtali við fréttastofu að pakistanski herinn muni reyna að flytja líkin niður.

„Í Íslamabad er nú unnið að því að útvega þyrlur fyrir morgundaginn eða hinn til þess að ná í líkin. Ef klifurmennirnir í fjallinu koma með þá niður í kannski 6.000 eða 6.500 metra hæð getur þyrlan farið þangað og sótt líkin,“ segir Anwar Syed, einn eigenda ferðaskrifstofunnar, í samtali við fréttastofu.

John Snorri var í fylgd með tveimur vinum sínum, pakistönsku feðgunum Ali Sadpara og Sajid Ali Sadpara. Juan Pablo Mohr frá Chile slóst í hópinn á ákveðnum tímapunkti. Sajid hélt aftur niður vegna bilunar í búnaði í um 8.200 metra hæð en þeir sem eftir urðu uppi í fjallinu létust.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 frá því í kvöld.


Tengdar fréttir

Hafa fundið þriðja líkið á K2

Hópur göngumanna, sem staddur er á K2, hefur fundið þriðja líkið fyrir ofan fjórðu búðir K2 í dag. Samkvæmt frétt Explorers Web eru líkin af John Snorra Sigurjónssyni, Juan Pablo Mohr og Ali Sadpar sem fórust á K2 í febrúar. 

Telja sig hafa fundið lík Johns Snorra og Sadpara á K2

Tvö lík hafa fundist fyrir ofan fjórðu búðirnar á K2, á þeim slóðum sem John Snorri Sigurjónsson og samferðamenn hans týndust í febrúar síðastliðnum. Staðfest hefur verið að annað líkanna er af Ali Sadpara, samferðamanni Johns Snorra. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×