Innlent

Tveggja bíla árekstur við Ártúnsbrekku

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Mynd frá vettvangi áreksturs við gatnamót Höfðabakka og Ártúnsbrekku í kvöld.
Mynd frá vettvangi áreksturs við gatnamót Höfðabakka og Ártúnsbrekku í kvöld. Vísir/aðsent

Tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Höfðabakka og Ártúnsbrekku rétt eftir klukkan níu í kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var um að ræða árekstur tveggja bifreiða. Lítið var um slys á fólki, en einn hlaut minniháttar áverka. Slökkviliðinu barst útkall rétt eftir klukkan níu í kvöld.

Lögregla stýrði umferð um svæðið rétt eftir slysið.

Slökkviliði barst útkall rétt eftir klukkan níu.Vísir/aðsent



Fleiri fréttir

Sjá meira


×