Innlent

Sprengi­sandur: Endur­reisn ferða­þjónustunnar, breyti­legir vextir á lánum og dóm­stóll götunnar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sprengisandur hefst klukkan 10.
Sprengisandur hefst klukkan 10.

Margt verður rætt í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Höllu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra ASÍ, og Bjarnheiði Halldórsdóttur, formann SAF, um endurreisn ferðaþjónustunnar.

Fyrir liggur ályktun ASÍ um að ekki megi endurreisa ferðaþjónustuna með láglaunastefnu og hins vegar hugmynd SAF og SA um að atvinnuleysistryggingar séu svo rausnarlear að margir vilji frekar njóta þeirra en þiggja störf í boði.

Af þeim munu Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna taka við keflinu. Neytendasamtökin ætla að láta á það reyna að fara með lögmæti lána með breytilega vexti fyrir dóm vegna skilmála lánanna, sem samtökin telja einhliða og ógagnsæja og munu Katrín og Breki ræða málið.

Þá mæta Einar Gautur Steingrímsson lögmaður og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar og lögfræðingur og munu þau ræða dómstól götunnar í kynferðisbrotamálum, traust á dómstólum, gerendameðvirkni og all sem þessum málaflokki fylgir.

Í lok þáttarins mæta Guðmundur Andri Thorsson og Gunnar Smári Egilsson til að ræða stöðu stjórnmála í landinu og umræður, hvað muni vera efst á baugi fram á haust og hvort megi búast við sömu ríkisstjórn aftur að loknum Alþingiskosningum.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×