Erlent

Loftlagsmótmæli við G7 leiðtogafundinn

Árni Sæberg skrifar
Loftlagsaðgerðarsinnar í kröfugöngu í St. Ives.
Loftlagsaðgerðarsinnar í kröfugöngu í St. Ives. William Dax/Getty

Umhverfisverndarsamtökin Extinction rebellion blésu í gær til fjölmennra mótmæla í Cornwall þar sem leiðtogafundur G7 ríkjanna fer fram um helgina.

Hundruðir mótmælenda tóku þátt í kröfugöngu í sjávarþorpinu St. Ives í Cornwall í gær. Tilgangur kröfugöngunnar var að vekja athygli leiðtoga sjö öflugustu iðnríkja heims á loftlagsváni.

Skipuleggjendur mótmælanna, Extinction Rebellion, skilgreina sig sem samtök um friðsæla borgaralega óhlýðni. 

Yfirskrift mótmælanna var „Hringið bjöllunum!“ en forsprakkar þeirra hvöttu mótmælendur til að hafa eins mikil læti og þeir mögulega gátu. Mótmælendur beittu meðal annars trommum og lúðrum til að hafa hávaða.

Skýr skilaboð til heimsleiðtoga

„Þetta þarf að segja hátt og skýrt. Við erum að hringja viðvörunarbjöllum af því við sjáum fram á stórslys, vistfræðilegt- og veðurfarslegt hrun," sagði Melissa Carrington, talsmaður Extinction Rebellion, í samtali við Deutsche Welle.

„G7 leiðtogarnir verða að vita að óljós loforð duga ekki til. Við þurfum stefnumörkun, við þurfum áætlanir, við þurfum lagasetningu og við þurfum tafarlausar og brýnar aðgerðir,“ bætti hún við. 

Kröfugöngunni lauk við hlið hótelsins hvar leiðtogarnir halda til meðan á fundinum stendur. Hópur aðgerðarsinna kom þá skilaboðum, frá íbúum landa sem loftslagsbreytingar hafa haft slæm áhrif á, til leiðtoganna.

Mikill viðbúnaður lögreglu

Lögreglan í Cornwall og Devon hefur aldrei tekist á við verkefni af sömu stærðargráðu og leiðtogafundurinn. Í tilefni fundarins voru um 6.500 lögreglumenn fluttir til Cornwall víðs vegar að af Bretlandi. 

Alison Hernandez, lögreglustjóri í Cornwall og umhverfi, segir lögregluna búna undir ofbeldisfull mótmæli. „Við erum með óeirðalögreglumenn á hliðarlínunum ef ske kynni að komi til óeirða. Við vonum að ekki komi til þess,“ segir hún við DW.

Búist er við fjölmörgum mótmælum í tengslum við leiðtogafundinn og hefur lögreglan komið upp fjórum sérstökum mótmælasvæðum. Þegar hafa ein samtök aðgerðasinna tilkynnt að þau muni virða tilmæli lögreglu, um staðsetningu mótmæla, að vettugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×