Viðskipti innlent

„Make JL-húsið Great Again“

Snorri Másson skrifar
Árni Kristjánsson, Bragi Ægisson og Haukur Már Gestsson, þrír eigenda Skor í JL-húsinu.
Árni Kristjánsson, Bragi Ægisson og Haukur Már Gestsson, þrír eigenda Skor í JL-húsinu. Aðsend mynd

Rekstur er hafinn á enn einum pílustaðnum á höfuðborgarsvæðinu, sem út af fyrir sig væri ekki í frásögur færandi enda spretta þeir upp eins og gorkúlur nú um mundir.

Pílubarinn Skor er hins vegar boðberi nýrra tíma að því leyti að eigendur hans ákváðu að koma honum á kopp í JL-húsinu við Hringbraut, á gríðarstórri jarðhæð sem staðið hefur auð í nokkur ár.

„Ég held að þetta JL-hús sé bara mjög vanmetið. Ég held að það hafi kannski verið einhver neikvæðni í garð hússins en hún á ekki rétt á sér,“ segir Bragi Ægisson, framkvæmdastjóri 0101 ehf., sem rekur Skor.

Það eru allir í pílu.Aðsend mynd

„Nú er bara að Make JL-húsið Great Again,“ segir Bragi, sem býður einnig upp á karókí í rýminu. Áður var Skor í tímabundnu húsnæði á Hafnartorgi.

Á árum áður var verslun Nóatúns lengi í húsnæðinu, alveg þar til hótelið Oddsson tók við og var með móttöku og veitingastað í rýminu. Frá dögum Oddsson eru enn innréttingar fyrir karókí, sem eru færðar í nyt í nýrri starfsemi. Hótelið hætti starfsemi á staðnum 2018.

„Pílan er náttúrulega búin að vera vinsæl. Að mörgu leyti er það vegna sjónvarpsins. En hérna er þetta ekki endilega bara pílan. Þetta er bara stemning sem hentar vel fyrir hópa,“ segir Bragi.

Cariokeí-málið

Hóparnir finna sig einmitt einnig í karókí, eða „cariokeí“, eins og stendur utan á staðnum. Sá ritháttur hefur farið öfugt ofan í suma. Bragi: „Er þetta ekki skrifað svona? Þetta var okkar besta gisk, alla vega.“ 

„Við erum að tala um cariokeí,“ sagði maðurinn.

Bragi útskýrir að enginn viti hvernig eigi að skrifa karókí en á það má benda að íslensk orðabók talar um „karókí“. En eigi óhefðbundinn rithátturinn að vekja athygli í þessu tilviki, hefur það ætlunarverk tekist.

Staðurinn opnaði í síðustu viku og var fullur alla helgi eins og mátti búast við af Íslendingum í afléttingarfasa eftir fimbulvetur. Bragi og félagar vilja hreiðra almennilega um sig í JL-húsinu og ætla að stækka staðinn hægt og rólega, enda nægt svigrúm innan rýmisins til slíks.


Tengdar fréttir

XO á Hringbraut kveður

Forsvarsmenn XO hafa lokað veitingastað sínum við Hringbraut í JL-húsinu í vesturbænum í Reykjavík. Ástæðan er sögð breytingar á rekstri í húsnæðinu.

Bakarí Jóa Fel gjaldþrota

Bakarísrekstur Jóhannesar Felixssonar, Jóa Fel, er kominn í þrot. Gjaldþrotabeiðni Lífeyrissjóðs verzlunarmanna var samþykkt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×