Innlent

Furðuleg froða í læk við Vog

Árni Sæberg skrifar
Froðan rennur úr frárennsli við Stórhöfða.
Froðan rennur úr frárennsli við Stórhöfða. Vísir/Vilhelm

Mikil froða gaus upp við frárennsli í læk við Vog, sjúkrahús SÁÁ við Stórhöfða í Reykjavík, í dag.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hafði ekki fengið tilkynningu um froðuna þegar fréttastofa grennslaðist fyrir um orsakir froðunnar. Þó vissi starfsmaður eftirlitsins strax um hvaða læk var að ræða. Undanfarið hefur mikið borið á að lækurinn freyði. Eftirlitinu hefur ekki enn tekist að finna upptök froðunnar þrátt fyrir miklar rannsóknir.

Froðan er forkunnarfögur, þó hún sé ekki æskileg.Vísir/Vilhelm

Orsakast líklega af aðskotaefnum í niðurföllum

Rannsóknir heilbrigðiseftirlitsins benda til þess að hreinsiefni berist í niðurföll utandyra sem eru ekki í stakk búin að taka við slíkum efnum. 

Þó nefnir starfsmaður eftirlitsins þann möguleika að rangar tengingar niðurfalla innandyra séu rót vandans.

Heilbrigðiseftirlitið biðlar til fólks að gæta vel að því hvað fer í niðurföll utandyra. Sér í lagi sé mikilvægt að fyrirtæki sem stunda bílaþvott láti affallsvatn renna í niðurföll búin sérhæfðum skiljum.

Erfitt sé að rekja upptökin

Starfsmaður eftirlitsins segir nær ómögulegt að rekja upptök froðunnar þar sem ekki sé hægt að setja upp gildrur líkt og gert er þegar um skólp er að ræða. 

Þá er froðan oftar en ekki runnin til sjávar þegar eftirlitið ber að garði.

Yfirborðsvatn af ógnarstóru svæði rennur um lækinn og ekki auðveldar það eftirlitinu rannsóknir. Lækurinn tekur við vatni frá hluta Höfðahverfis og alls Hálsahverfis.

Gróður við lækinn er nú tandurhreinn.Vísir/Vilhelm

Heilbrigðiseftirlitið telur ekki hættu á ferð

Froðan í læknum stafar líklega af hreinsiefnum sem flokkast ekki sem eiturefni og því telur eftirlitið enga hættu á ferð. Þó geta slík efni verið ertandi fyrir þau með viðkvæma húð. 

Heilbrigðiseftirlitið rannsakar þó öll óeðlileg tilvik og eru starfsmenn þess því við rannsóknir á læknum. Ef rannsóknir eftirlitsins benda til hættu verður send út tilkynning þess efnis.

Spilliefni geta hæglega borist með yfirborðsvatni og er fólk því beðið að fara með gát þegar vatn er öðruvísi en það á til með að vera. Til dæmis barst olía í Elliðaárnar síðast í febrúar.

Froðan dró forvitna að læknum.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×