Vísbendingar um tengsl milli bóluefnis Pfizer og hjartavöðvabólgu Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2021 08:04 Alls hafa 275 tilfelli hjartavöðvabólgu verið skráð í Ísrael frá desember 2020 til maímanaðar 2021. Um fimm milljónir hafa á þeim tíma verið bólusettir í landinu. EPA Heilbrigðisráðuneyti Ísraels hefur greint frá því að vísindamenn þar í landi hafi séð nokkur tilfelli hjartavöðvabólgu meðal ungra karlmanna sem hafa fengið bóluefni Pfizer gegn kórónuveirunni og að tengsl kunni að vera þar á milli.
Reuters segir frá þessu. Í yfirlýsingu frá Pfizer segir að fyrirtækinu sé kunnugt um rannsóknir ísraelsku vísindamannanna, en að ekki sé búið að sannreyna að um orsakasamband sé að ræða. Reglulega sé fundað um alvarleg tilvik sem upp koma. Alls hafa 275 tilfelli hjartavöðvabólgu verið skráð í Ísrael frá desember 2020 til maímanaðar 2021. Um fimm milljónir hafa á þeim tíma verið bólusett í landinu. Flestir þeirra sjúklinga sem glímdu hjartavöðvabólgu voru að hámarki fjóra daga á sjúkrahúsi vegna kvillans og í 95 prósent tilfella voru sjúkdómseinkennin skráð sem „væg“. Ísraelska heilbrigðisráðuneytið segir að þrjú teymi vísindamanna hafi staðið að rannsókninni. Hún hafi leitt í ljós að það séu „líkleg tengsl“ milli þess að fá seinni skammt bóluefni Pfizer og hjartavöðvabólgu meðal karlmanna á aldrinum sextán til þrjátíu ára, og þá sér í lagi meðal þeirra í aldurshópnum sextán til nítján. Um fá tilfelli sé þó að ræða. Bandaríska sóttvarnastofnunin (CDC) mældi í síðasta mánuði með gerð frekari rannsókna á mögulegum tengslum hjartavöðvabólgu og mRNA-bóluefna, þar með talin bóluefni Pfizer og Moderna.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Ísrael Mest lesið Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Erlent „Mér finnst þessi tilraun heldur ósmekkleg“ Innlent Lausn menntamálaráðherra sé valdníðsla Innlent Þyrlu Landhelgisgæslunnar flogið norður vegna slyssins Innlent Fyrstu kvenkyns prófessorarnir í stærðfræði fagna dátt Innlent Samstarf með ESB í varnarmálum komið í „formlegan farveg“ Innlent Vilja ekki að íbúar upplifi sig undir stöðugu eftirliti stóra bróður Innlent Nauðgaði barnungri náfrænku sinni margítrekað Innlent Hringbraut lokað vegna bílslyss Innlent Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Erlent Fleiri fréttir Segist ætla finna orsök einhverfu fyrir september Spánverjar óska eftir umræðu um þátttöku Ísrael í Eurovision Ráku yfirmann herstöðvarinnar á Grænlandi eftir heimsókn Vance Ætla að hætta að safna gögnum um losun gróðurhúsalofttegunda Myndir af fjölskyldunni til sölu í fjóra tíma eftir þyrluslysið Telja mögulegt að dularfullar bækur frá miðöldum tengist Íslandi Sex látnir eftir að þyrla brotlenti í New York Ógnarúlfur risinn upp frá dauðum Andrew Tate beint byssu að andliti konu og hótað henni Fæddi barn ókunnugrar konu vegna mistaka Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju Sjá meira