Viðskipti innlent

Spennt fyrir því að endurvekja Arctic Rafting

Eiður Þór Árnason skrifar
Tinna Sigurðardóttir, leiðsögukona og fjárfestir.
Tinna Sigurðardóttir, leiðsögukona og fjárfestir. Aðsend

Leiðsögukonan og fjárfestirinn Tinna Sigurðardóttir hefur keypt flúðasiglingafélagið Arctic Rafting af ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures.

Arctic Rafting hóf flúðasiglingar árið 1983 undir vörumerkinu Bátafólkið en félagið rann saman við Arctic Rafting árið 2005 þegar hið síðarnefnda var keypt af Torfa G Yngvasyni og Jóni Heiðari Andréssyni. Var félagið síðar fært undir vörumerkið Arctic Adventures. Tinna var þriðji starfsmaður þess félags árið 2006 og starfaði lengi sem sölustjóri og ævintýraleiðsögukona, að því er fram kemur í tilkynningu.

Tinna hefur nú tekið við rekstrinum og fór með sinn fyrsta hóp í flúðasiglingu þann 1. maí síðastliðinn. Hún er með viðskiptafræðigráðu frá Griffith University í Ástralíu.

Viss um að það sé áhugi fyrir kajak-skóla

„Indland og Nepal eiga sérstakan stað í hjarta hennar og þangað hefur hún árlega lagt leið sína í kajak- og flúðasiglingaferðir. Síðastliðin sumur hefur Tinna starfað við leiðsögn í flúðasiglingum í Noregi og á veturnar í göngum á Vatnajökli. 

Tinna er spennt að taka við Arctic Rafting og ætlar í mikla uppbyggingu þrátt fyrir að reikna ekki með stríðum straum erlendra ferðamanna þetta sumarið,“ segir í tilkynningu.

Drumboddsstaðir í Bláskógabyggð eru bækistöðvar Arctic Rafting.Aðsend

Bækistöðvar Arctic Rafting eru að Drumboddsstöðum í Bláskógabyggð og eru þær oftast kallaðar Drumbó. Í apríl lauk þar miklum endurbótum og í haust stefnir Tinna á frekari framkvæmdir.

Kajak- og flúðasiglingar eru sagðar eiga hug hennar allan og er Tinna alveg viss um að það sé áhugi fyrir kajak-skóla á Drumbó.

„Það er mikilvægt að það sé til góð aðstaða fyrir þann samheldna hóp sem myndar grasrótina í vatnssportinu. Ég vonast til að geta dreift þekkingu og jafnvel haldið straumvatnsmót í framtíðinni,“ segir Tinna.

Hún segist vera bjartsýn á gott sumar, þrátt fyrir mikla óvissutíma og taka á móti fólki í kanó- og flúðasiglingar með bros á vör.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×