Innlent

Gætu gripið til þess að loka skólum

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar.
Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar.

Hátt í 200 Skagfirðingar voru skimaðir fyrir kórónuveirunni í dag eftir að fjórir greindust með veiruna á svæðinu. Lögregla biðlar til fólks að halda sig til hlés en óvíst er með skólahald í næstu viku.

Fjóri greindust með kórónuveiruna í gær og var einn þeirra utan sóttkvíar við greiningu. Hátt í 200 íbúar í Skagafirði fóru í sýnatöku í dag eftir að fjórir greindust smitaðir á svæðinu. Sýnin voru flutt suður og munu niðurstöður að líkindum liggja fyrir í kvöld.

Þeir smituðu í sömu fjölskyldu

Sveitarstjóri Skagafjarðar segir að fólki sé brugðið en tugir eru komnir í sóttkví.

„Það er búið að rekja upptökin. Þetta eru einstaklingar sem voru í samskiptum við smitaðan einstakling fyrir sunnan. Þetta tengist sömu fjölskyldu og vinnufélögum,“ sagði Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Skagafjarðar.

Eðli vinnustaðarins sé þannig að tengslin geta náð víða um samfélagið. Búið er að aflýsa leiksýningu sem átti að fara fram á Sauðárkróki í dag, engar bíósýningar verða á morgun auk þess sem heitum pottum og gufum verður lokað í sundlaugum.

Sigfús segir að framhaldið muni ráðast af niðurstöðum skimana.

„Ef okkur þykir ástæða til þá munum við takmarka eða loka einhverjum skólum á mánudag.“

Biðla til fólks að sinna sóttvörnum og halda sig til hlés

„Við höfum sent út erindi til íbúa að gæta vel að sóttvörnum og fara eftir þeim fyrirmælum sem sett hafa verið, passa sig og halda sig til hlés. Það er okkar von að það muni skila okkur góðum árangri í þessari baráttu,“ sagði Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra.

Metfjöldi farþegaflugvéla til landsins um helgina

Metfjöldi, frá því að faraldurinn hófst, er í komu farþegaflugvéla til landsins í dag og á morgun. Sjö flugvélar lentu á Keflavíkurflugvelli í dag og er von á þeirri áttundu í kvöld. Sex flugvélar eru væntanlegar til landsins á morgun. 

Yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir að vel hafi gengið á flugvellinu í dag þó einhverjir hafi þurft að bíða í tæpa tvo tíma eftir afgreiðslu landamæravarða. Verklagi var breytt á flugvellinum fyrir helgi til að takast á við fjölda komufarþega og var afgreiðsluhraðinn tvöfaldaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×