Banna umfjöllun um konunglegar deilur í Jórdaníu Atli Ísleifsson skrifar 6. apríl 2021 14:22 Hinn 59 ára Abdúlla tók við embætti Jórdaníukonungs af föður sínum árið 1999. EPA Ríkissaksóknaraembættið í Jórdaníu hefur lagt bann við alla umfjöllun fjölmiðla þar í landi um deilur milli Abdúlla II konungs og Hamza, hálfbróður hans og fyrrverandi krónprins.
Ríkisfjölmiðlar í Jórdaníu greina frá þessu, en bannið nær einnig til umræðna á samfélagsmiðlum. Mikil óvissa hefur verið í Jórdaníu síðustu daga vegna málsins, en stjórnmálalegur stöðuleiki hefur verið mikill í landinu síðustu ár. Um helgina var greint frá því að hópur manna tengdur Hamza hafi verið handtekinn vegna gruns um að hafa átt í samskiptum við erlenda aðila með það að markmiði að grafa undan jórdönskum stjórnvöldum og þar með Abdúlla konungi. Hamza var í kjölfarið gert að sæta stofufangelsi, en í gær var svo greint frá því að hann hafi ritað undir plagg þar sem hann sór hollustu við konunginn. Hamza var sömuleiðis boðið á fund konungsins í konungshöllinni í höfuðborginni Amman. Hamza var áður krónprins Jórdaníu en missti þann titil árið 2004 þegar eldri hálfbróður hans, Abdúlla II, gerði son sinn að nýjum krónprins. Þeir Abdúlla og Hamza eru báðir synir Hússein, fyrrverandi konungs landsins. Hinn 59 ára Abdúlla tók við embætti Jórdaníukonungs af föður sínum árið 1999.
Jórdanía Kóngafólk Mest lesið Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Erlent Hlaut of þunga refsingu fyrir mistök Innlent Yfir 190 gestir Fabrikkunnar með nóróveiru síðasta sumar Innlent Býður þingmönnum að „fá hrollkaldan veruleikan í andlitið“ Innlent Gremja vegna golfbíla á meistaramóti Innlent Alvarlega slasaður eftir mótorhjólaslys Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Sjúklingur réðst á lækni sem fær ekki bætur frá ríkinu Innlent Fleiri fréttir Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Sjá meira