Innlent

Þorsteinn nýr forstjóri Hafró

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þorsteinn Sigurðsson, nýr forstjóri Hafró.
Þorsteinn Sigurðsson, nýr forstjóri Hafró.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað Þorstein Sigurðsson í embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar – rannsóknar- og ráðgjafastofnunar hafs og vatna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Sex sóttu um starfið.  Guðmundur J. Óskarsson sviðsstjóri, Guðmundur Þórðarson sviðsstjóri, Marcin Zembroski sérfræðingur, Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri og Sigurður Guðjónsson forstjóri til síðustu fimm ára auk Þorsteins.

Kristján Þór ákvað á síðasta ári að auglýsa starfið til umsóknar en mikið hefur gengið á hjá Hafró undanfarin misseri. Meðal annars hafa fyrrverandi starfsmenn fengið dæmdar bætur vegna ólögmætra uppsagna

Þorsteinn Sigurðsson er með BS gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og Cand. Scient gráðu frá Háskólanum í Bergen. Þorsteinn hóf störf sem sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun árið 1994. 

Árin 2005 til 2016 starfaði hann sem forstöðumaður nytjastofnasviðs og frá árinu 2016 til 2019 var hann forstöðumaður sviðs uppsjávarlífríkis. Árið 2020 hóf hann störf sem sérfræðingur á skrifstofu sjávarútvegs og fiskeldis í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, nú skrifstofa sjávarútvegsmála.

Alls bárust sex umsóknir um embætti forstjóra Hafrannsóknarstofnunar, en umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar 2021 og mat hæfn­is­nefnd þrjá umsækj­endur vel hæfa til þess að gegna embættinu.

Ráðherra var sammála mati nefndarinnar og boð­aði í kjölfarið þá þrjá sem metnir voru hæfastir í við­tal þar sem ítar­lega var farið ofan í ein­staka þætti starfs­ins. Var það mat ráð­herra, að Þorsteinn væri hæfastur umsækj­enda til að stýra Hafrannsóknastofnun til næstu fimm ára.

Fréttin er í vinnslu.


Tengdar fréttir

Óvænt uppsögn eftir 26 ára starf reyndist ólögmæt

Björn Gunnarsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun til 26 ára, segir skrýtið ef forstjóri stofnunarinnar komist upp með ólögmætar uppsagnir án þess að sæta einhverjum viðurlögum. Ríkislögmaður samdi við Björn og annan starfsmann til lengri tíma um greiðslu bóta upp á milljónir króna vegna uppsagnanna.

Sex vilja gegna em­bætti for­stjóra Haf­ró

Alls sóttu sex um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020. Umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar síðastliðinn, en í hópi umsækjenda er núverandi forstjóri, Sigurður Guðjónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×